Tímarit lögfræðinga - 01.06.1972, Blaðsíða 33
og fyrst og fremst fræðileg og þvi einungis raunhæf að
meira eða minna takmörkuðu leyti, séu varhugaverð sem
sönnunargögn til að byggja á gagnrýnislaust mat bóta
fyrir örorku.
Það liggur í augum uppi, að mismunandi eðli meiðsla
hlýtur að ráða miklu um það, hvort framkvæmd einstaks
örorkumats sé auðveld eða vandkvæðum bundin. Það hlýt-
ur að vera ólíkt auðveldara að meta örorku af völdum
meiðsla, sem eru áþreifanleg, ef svo má segja, þ. e. vef-
ræn, svo sem t. d. ef tjónþoli hefur misst framan af fingri,
eða þegar um slík meiðsli er að ræða, að einungis er við
kvartanir slasaða að styðjast, eins og iðulega er um höfuð-
meiðsli. 1 fyrra tilvikinu yrði niðurstaða örorkumatsins
óvéfengjanleg yfirleitt virt á læknisfræðilegan mælikvarða
eingöngu. Tilteknar augljósar vefrænar afleiðingar slyss-
ins tákna tiltekna örorku samkvæmt örorkutöflum. Öðru
máli gegnir um hinar óvefrænu afleiðingar. Sjúklingar
eru misjafnlega kvörtunarsamir og harðir af sér. Sumir
harka af sér, aðrir eru allir og sífellt undirlagðir af óþæg-
indum. Læknavísindin virðast standa að nokkru leyti ráð-
þrota gagnvart þessu. Um ýms;ir orsakir virðist geta verið
að ræða. Stundum sjálfráðar, meðvitaðar og tilfundnar.
Er þá orðið stutt í svokallaða bótasýki. 1 öðrum tilvikum
geta orsakir kvartana verið slasaða ómeðvitaðar og ósjálf-
ráðar og þá oft ill- eða ólæknanlegar. Hér er lækni, sem
örorkumat á að framkvæma, að sjálfsögðu mikill vandi
á höndum. Stundum er kveðið upp úr um það í vottorðum
taugasérfræðinga, þegar ekkert vefrænt samband er finn-
anlegt milli áverka og kvartana slasaða, að bezt sé að ljúka
llPPgjöri sem fyrst. Grunur vaknar um það, að bata sé þá
að vænta að marki, þegar bætur hafa verið reiddar af
hendi. Hafi varanleg örorka verið metin í shku tilviki og
fái slasaði góðan bata að loknu uppgjöri, hefur það ein-
faldlega skeð, að bætumar hafa læknað afleiðingar meiðsl-
anna og koma þvi í hendur tjónþola sem fjárhagslegur
ávinningur að verulegu leyti í stað þess að hlutverk þeirra
Timarit lögfræðinga
67