Tímarit lögfræðinga - 01.06.1972, Blaðsíða 8
lagafyrirmæli síðan um árið 1000, sem kveða á um bætur
vegna limamissa og brota. Þessi lög voru í gilcli i Englandi
og Danmörku, og þau voru ekki friunsmið þeirra tíma,
heldur má rekja frumdrög þcssara laga til 500 eða 600.
Ég ætla hins vcgar eldd að gefa liér neitt heimssögulegt
yfirlit um lagaákvæði og geri ráð fyrir, að margir hér séu
miklu fróðari um það. Eg vildi aðeins benda á þetta til
að sýna, að hér stöndum við á nokkuð gömlum merg.
En lítum sluttlega yfir þróun slysatryggingamála hjá
okkur. Fyrstu lög um slysatryggingar voru sett í nóvem-
ber 1903, og þessi lög tóku eingöngu til sjómanna á þil-
skipum. Skipatryggingin var ekki skyldutrygging atvinnu-
rckcnda og skuldbatt þá eldci til bóta við slys, og sjó-
mennirnir greiddu sjálfir % kostnaðar við trygginguna.
Árið 1909 breyttust þessi lög og bötnuðu á þann veg, að
þau tóku til allra skráðra sjómanna. Á árum fyrri lieims-
styrjaldarinnar voru gerðar brcytingar allmiklar til hækk-
unar, einkum á dánarbótum, og var þar tekið tillit til
þeirrar auknu hættu, scm af stríðinu leiddi. Það er ekki
fyrr en 1925, að sett eru lög um slysatryggingu, sem taka
til allra cða fleslra launþega, og þá er cinnig gerð sú
breyting að gera atvinnurekendum skylt að tryggja starfs-
mcnn sína. Fram til þess tíma höfðu iðgjöld verið jafnhá
fyrir alla, en nú var tekin upp skipting eftir atvinnuhættu
og iðgjöld miðuð við það. Um þetta leyti er einnig byrjað
að greiða dagpeninga vegna slysa. Við lagabreytingar á
árinu 1930 var byrjað að greiða læknishjálp og lyf úr
slysatryggingu.
Þegar lög um alþýðutryggingar voru sett 1936, var öll-
um tryggingamálum komið í heildarkerfi, og þá varð slysa-
tryggingin ein deild í ríkistryggingunni, en að öðru leyti
varð ekki á þessu ári ncin veruleg breyting á þeim regl-
um, scm áður giltu. Hins vegar varð sú breyting 1913, að
farið var að taka upp g'reiðslu barnalífeyris til aðstand-
enda þeirra, er létust af slysum, og einnig til ekkna, sem
voru eldri en 50 ára. Við hina mildu endurskoðun 1946
42
Tímarit lögfræðinga