Tímarit lögfræðinga - 01.06.1972, Blaðsíða 17
Cjunnar lílíj. CjLijmundiion liœítaréttartöcjtnajnir:
UM ÖRORKUMÖT
Grein sú, sem hér birtist, er erindi, sem ég flutti á fundi í
Lögfræðingafélagi íslands 22. febrúar 1972, en á fundi þessum
hafði ég ásamt Páli Sigurðssyni, ráðuneytisstjóra, framsögu
um örorkumöt. Að fundi loknum falaðist formaður félagsins
eftir því við frummælendur, að þeir létu þess kost, að erindin
birtust í Tímariti lögfræðinga. Varð það úr, og þó með hálfum
huga af minni hálfu, því að erindið var ekki hugsað sem fræði-
legt framlag til birtingar á prenti, heldur sem almennar hug-
leiðingar byggðar á langri starfsreynslu. Það, sem einkum réði
hér úrslitum, voru næsta athyglisverðar upplýsingar, sem fram
komu í framsöguerindi Páls Sigurðssonar um raungildi ör-
orkumats. Lýsti hann því yfir, að framkvæmd örorkumats hér-
lendis væri eingöngu byggð á læknisfræðilegum sjónarmiðum
og ekki tekið tillit til þess, hvort um raunverulega skerðingu
starfsorku væri að ræða. Samkvæmt því hníga örorkumöt hér-
lendis alfarið að röskun á lífsaðstöðu tjónþola í þjóðfélaginu
alveg án tillits til þess, hvort þau meiðsli, sem um er að tefla
hverju sinni, hafi valdið eða séu fallin til að valda rýrari
tekjumöguleikum vegna skertrar starfsorku. Jafnframt var því
lýst yfir af ræðumanni, að í langflestum tilvikum, þegar ekki
er um því meiri örorku að tefla, sé ekki að neinu leyti um
raunhæfa skerðingu starfsorku að ræða, en í sumum tilvikum
batni aðstaða tjónþola til tekjuöflunar.
Frmangreindar upplýsingar vöktu eðlilega mikla athygh á
fundinum, því að á augabragði fengu menn að vita það um
raungildi örorkumats sem sönnunargagns um fjárhagslegt tjón
af völdum slysa, er þá hafði áður grunað, að gæti verið raunin
að vissu leyti. Það hefur sem sagt lengi verið almenn skoðun
í hópi lögfræðinga, sem helzt hafa um slík mál fjallað, að ör-
orkumöt væru iðulega næsta óraunhæfur mælikvarði á skerta
starfsorku.
Þegar þessi vitneskja hefur nú verið kunngjörð, liggur í
augum uppi, að tjón af völdum slysa á fólki hafa hérlendis
Tímarit lögfræðinga
51