Tímarit lögfræðinga - 01.06.1972, Blaðsíða 11
kom í ljós það, seni raunar var vitað, að reglur um ör-
orkumöt eru allmismunandi á Norðurlöndum. Á þinginu
kom fram tiilaga um, að Norðurlöndin hefðu samvinnu á
þessu sviði, og varð það úr, að skipuð var nefnd haustið
1960, sem 1 voru tveir fulltrúar frá hverju landi. Yar gert
ráð fyrir, að frá hverju landi væri læknir, sem hefði feng-
izt við örorkumöt, og lögfræðingur, sem hefði kynni af
þessum málum. Af Islands hálfu sátu í nefndinni undir-
ritaður og Jón Ingimarsson lögfræðingur, sem nú er skrif-
stofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu. Þessi nefnd hélt all-
marga fundi, aflaði mjög mikilla gagna, bæði frá Norður-
löndum og öðrum löndum, og fyrir næsta norræna al-
mannatryggingamót, sem haldið var í Kaupmannahöfn,
birti nefndin nefndarálif, sem gefið var út í Osló 1963.
Gerði nefndin þar tillögur um sameiginlegar örorkumats-
töflur fyrir Norðurlönd. Miklar umræður urðu á þessum
fundi, og var gert ráð fyrir að þeir, sem við örorkumöt
vnnu, reyndu að nota þessi örorkumöt til viðmiðunar í
sínum heimalöndum.
Norræn meðaltafla fyrir örorkumöt.
Tegund GILDI
h V
Missir 1. fingurs 25 20
Missir 2. íingurs 10 10
Missir handar 60 50
Staurliður i úlnlið 10 10
Aflimun upparms 70 60
Aflimun á legg 30 30 >35 >40
Aflimun á læri 50 50 >55 >60
Lömun á sveifartaug 25 20
Lömun á ölnartaug 30 25
Lömun á miðtaug’ 35 30
Staurliður í hné 25 25
Staurliður í mjöðm 30 30
Heyrnarleysi '50 Annað 10
Blinda 100 Annað 20 > 25
Staurliður •— subtalo 5 5
Staurliður -— ökli 15 15
Tímarit lögfræðinga
45