Tímarit lögfræðinga - 01.06.1972, Blaðsíða 19
Einn meginþáttur í lífshamingju og vdf'arnaði livers
manns er andleg og líkamleg heilbrigði, en á henni grund-
vallast starfsorkan, sem ræður mestu um Iiæfni manna
til tekjuöflunar. Aldrei hefur verið lagt meira upp úr
andlegri velferð og efnalegri velgengni en nú á dögum.
Mönnum hafa heldur aldrei fyrr verið búin betri lífs-
skilyrði, ef miðað er við möguleika til fjölbreytilegra og
arðsamra starfa, til menntunar og margvíslegra lífs-
nautna. Fyllsta hluttaka einstaklingsins í sibatnandi lífs-
kjörum byggist fyrst og fremst á starfsorku hans.
Heilbrigði og heilsu allra manna er búin einhver hætta
vegna veikinda og slysa. Mjög er sú hætta mismunandi
og margvíslegum atvikum og aðstæðum háð. Slysahætta
er svo að segja alls staðar í einhverri mynd og einhverjum
mæli. Hérlendis mun vart sá dagur líða, að einhver meiðist
ekki af slysförum, þannig að skerðing starfsorku hljótist
af, tímabundið eða til frambúðar. Örorka í verulegum
mæli er að sjálfsögðu fallin til að skerða möguleika til
tekjuöflunar. Þó fer ekki alltaf saman metin örorka og
skerðing á tekjumöguleikum tjónþola, enda þótt tekju-
öflun hans byggist alfarið á vinnuframlagi af hans hálfu.
Starfi getur verið þannig háttað eða starfsaðstöðu, að
starfinu verði gegnt til hlítar þrátt fyrir veruleg örkuml.
Nútíma þjóðfélag býður upp á sífellt fjölbreyttari starfs-
möguleika, síaukna vélvæðingu og stöðugt margþættari
verkaskiptingu, þannig að margir starfsmenn sérhæfast
í einstökum þáttum starfs, oft með fulltingi fullkominna
véla, þar sem áður gegndi e. t. v. einn maður öUum þátt-
um starfsins við frumstæðan tækjakost. Við slíkar að-
stæður reynir eðlilcga mun minna á alhliða líkamsþrek
starfsmannanna, en þegar öll starfsaðstaða og starfsfram-
kvæmd var í frumstæðara horfi. Þetta á að sjálfsögðu
ekki við nærri öll störf. Við framkvæmd sumra starfa
reynir sem fyrr á fulla starfsorku starfsmanna.
Stundum er tekjuöflun alls ekki háð starfsorku. Tekjur
þess, er lifir á arði eigna sinna fyrst og fremst, þurfa eleki
Tímarit lögfræðinga
53