Tímarit lögfræðinga - 01.06.1972, Blaðsíða 72
Á stjórnarfundi, sem haldinn var hér heima fyriv
nokkru, var Ármann Snævarr kosinn formaSur, en
honum til aðstoðar við framkvæmdir þeir Benedikt
Blöndal og Hrafn Bragason. Tírni var til þess kominn
að ungir menn og ötulir takist á við þann vanda,
sem framundan er, enda óskuðu þeir sem eldri voru
að draga sig 1 hlé.
Við þingslit flutti þáverandi formaður íslenzku deild-
arinnar þakkir til finnsku stjórnarinnar og starfsliðs
hennar, svo og þátttakenda í umræðum fyrir árangurs-
ríkar umræður og höfðinglega móttöku. Þá bauð hann
til næsta þings í Reykjavík árið 1975. Var því boðá
vel tekið.
Að venju er þýðing þinganna öðrum þræði persónu-
leg kynni manna og munu margir hinna erlendu gesta
eiga góðar minningar frá þeim vettvangi, ekki sízt fra
heimilum, er þeir komu á.
III.
Hinnar nýju stjórnar íslenzku deildarinnar bíða mik-
il verkefni. Hvaö sem segja má um norræna samvinnu,
er það víst, að á sviði laga og réttar erum við 1 nánum
tengslum við Norðurlönd og því ættum við ekki að
gleyma. En jafnframt ber okkur að hafa í huga, að við
erum sjálfstæð þjóö og höfum þar mikils að gæta. Við
teljum okkur hlutgenga aðila í norrænu samstarfi og
má lögfræðingastéttin sízt láta hlut sinn þar eftir
liggja.
Okkur er því mikilsvert, að vel takist til um þingið
1975 og ekki síður en þingið 1960.
Hin nýja stjórn verður nú þegar að taka málið
föstum tökum, enda er þörf á löngum og rækilegum
undirbúningi.
Th. B. L.
106
Tímarit lögfræðinga