Tímarit lögfræðinga - 01.06.1972, Blaðsíða 58
hann keypti bátinn. Því hafi sá háttur verið hafður á, að
lánið mætti hvila á bátnum án þess að stefnandi tæki á
sig greiðsluábyrgð á því. Þegar stefnandi hafi selt bátinn
23. júlí 1966, hafi lán þetta verið tekið upp í afsal og þar
ákveðið, að kaupandinn tæki að sér greiðslu lánsins sem
veðskuldar á eigninni. Á þennan hátt hafi lánið verið
tekið sem hluti söluverðsins, en sá háttur hafi ekki verið
í samræmi við samning aðila. I annan stað bentu stefndu
á, að þeir hefðu nú tckið að sér greiðslu lánsins og leyst
bátinn úr veðböndum, eins og upphaflega hafi verið um
samið. Báðar þessar ástæður leiddu til sýknu.
I dómsforsendum segir, að stefndu hafi við sölu hluta-
bréfanna tekið að sér greiðslu ofangreindrar skuidar og
enn fremur skuldbundið sig til þess að létta veðinu af m/s
Braga. Ekki hafi verið vefcngt, að stefnandi væri réttur
aðili þeirrar fjárkröfu, sem stefndu hafi fellt á sig með
þessu samningsákvæði, enda sýndist það vafalaust. Næst
segir í dóminum, að stefndu hafi ekki efnt ofangreinda
skuldhindingu, og af þeim sökum hafi umrætt veð hvált
á m/s Braga, þegar stcfnandi hafi selt bátinn 23. júlí
1966. Stefndu hafi því vanefnt umrædda skuldbindingu
og orðið bótaskyldir gagnvart stefnanda, fyrir það tjón,
sem hann hafi beðið vegna þeirra. Ekki var fallizt á, að
fyrirsvarsmenn stefnanda hafi með aðgerðarleysi eða
framkvæmd sinni fyrirgert rétti sínum til skaðabóta í
tilefui þessara vanefnda. Þá segir, að í ofangreindu afsali
stefnanda til K sé yfirtaka þess síðarnefnda á umræddu
veðláni talin greiðsla upp í umsamið kaupverð. Verði að
líta svo á, að ekki hafi verið færð fram nein rök fyrir því,
að ncfnd veðskuld hafi ekki með fullri fjárhæð sinni haft
áhrif á greiðslur til stefnanda. Af þessum sökum var
stefnukrafan tekin til greina.
Einn dómenda skilaði sératkvæði í málinu og komst að
gagnstæðri niðurstöðu. Hann vildi þó fallast á það, að
stefnandi hefði orðið fyrir tjóni vegna vanefnda stefndu
á að fullnægja samningsskyldu og aflýsa veðinu af bátn-
92
Tímarit löqfræðinqa