Tímarit lögfræðinga - 01.06.1972, Blaðsíða 56
Frá sjó- og verzlunardómi Reykjavíkur
Hér á eftir kemur framhald á reifun dóma sjó- og
verzlunardóms Reykjavíkur, er borgardómararnir
Björn Þ. Guðmundsson og Stefán M. Stefánsson hafa
annazt eins og áður.
Dómarnir eru uppkveðnir árið 1970.
Vanefndir. — Skaðabætur.
Stefnandi máis þessa var hlutafélagið B h/f, en stefndu
voru einstaklingamir A, B o. fl. Var þeim stefnt til greiðslu
skaðabóta að fjárhæð kr. 100.000.00 ásarnt vöxtum og
kostnaði.
Upphaf máls þessa er það, að stefndu voru eigendur allra
hlutabréfa í útgerðarfélagi nokkru, en eina eign útgerðar-
félagsins var vélskipið Bragi, SI 44. Stefnandi keypti öll
hlutabréfin í útgerðarfélaginu. Með þvi móti töldu þeir
sig vera í raun réttri einungis að kaupa umrætt skip, enda
töldu þeir, að þessi háttur á eignayfirfærslu væri ódýrari
fyrir þá, heldur en kaup á skipinu sjálfu.
Við umrædd hlutabréfakaup tók stefnandi að sér að
greiða skuldir, tryggðar með veði í vélskipinu Braga, við
Fiskvciðisjóð Islands og Stofnlánadeild sjávarútvegsins að
eftirstöðvum kr. 1.510.266.10.
Auk þess mátti samkvæmt samningi aðila hvíla á skip-
inu með III. veðrétti skuld við ríkissjóð vegna atvinnu-
hótafés, kr. 106.000.00, samkvæmt veðbréfi 12. janúar
1958. Stcfndu skuldbundu sig þó til þess að losa skipið úr
þessum veðhöndum og lofuðu að setja stefnanda trygg-
ingu þangað til það yrði gert. Síðastnefnd veðskuld varð
síðan deiluatriði í málinu, eins og nánar verður vikið að.
Umrædd hlutabréfakaup fóru fram seint á árinu 1960, en
í samningi aðila var stefnda ekki settur neinn sérstakur
frestur til þess að létta umræddri veðskuld af III. veðrétti
90
7 imarit lögfræðinga