Tímarit lögfræðinga - 01.06.1972, Blaðsíða 35
held, að það væri mjög til bóta, ef dómstólar leituðu meira
en nú er gert fulltingis lækna á þeim sérsviðum læknis-
fræði, sem lielzt reynir á hverju sinni, með því að beita
sér fyrir dómkvaðningu lækna og með því að kveðja
lækna sér til ráðunevtis sem meðdómsmenn.
Auk þess sem nú hefur verið rakið og einkum varðar það,
liversu raunhæf örorkumöt cru hverju sinni, eru ýmis
fleiri atriði, sem timabært er að ljó athygli og taka til end-
urskoðunar. Þar yrði efst á baugi könnun þess, hvort
fengin reynsla af örorkumötum nú í aldarþriðjung hafi
yfirleitt gefið þá raun, að affarasælt sé að leggja þau til
grundvallar við mat bóta fyrir skerðingu starfsorku, hvort
einhver annar mælikvarði í þeirn efnum sé tiltækilegur
eða hvort ekki sé rétt að láta við það sitja að notast við
örorkumöt til hliðsjónar við mat tjóns og hverfa þar með
til liins upphaflega viðhorfs til þeirra. Mér sýnist að álvkta
megi, að mat á slysatjónum til fébóta sé löngu komið út í
nokkrar öfgar og tímabært orðið að snúa að einhverju
leyti við blaðinu. Virðist oft skína í gegn það viðhorf hjá
tjónþolum, sem von geta átt í örorkubótum, að hér sé
aiUt eins um fjárhagslegan ávinning að tefla, eins konar
óvæntan hvalreka eða happdrættisvinning fremur en raun-
hæft og hóflegt ígildi þess fjártjóns, sem orðið hefur.
Eg hef gert upp býsna mörg tjón út af slysum á fólki
og langflest með samkomulagi utan réttar. Ýmist hef ég
verið með í ráðum þeim til fulltingis, sem sóttur liefur
verið til bótaábyrgðar eða annazt uppgjör slíkra tjóna í
umboði tjónþola. Ég hef einnig sýslað við dómsstörf í
þessum málum svo til eingöngu um árabil. Ég' lield því,
að ég verði ekki með réttu vændur um að vera vilhallur
í viðhorfi minu til þessara mála. Ég hef einnig átt þess
kost að fylgjast með fjöhnörgum tjónþolum að loknum
uppgjörum tjóna þeirra. Mjög mörgum hefur örugglega
farnast vel fjárhagslega eftir uppgjör. Þess eru t. d. ýmis
dæmi, að starfsaðstaða manna hefur batnað stórlega.
Mönnum hafa oft áskotnazt þægilegri og tekjudrýgri störf,
Timarit lögfræðinga
69