Tímarit lögfræðinga - 01.12.1975, Page 10
4. Hvenær og hvar eru menn slysatryggðir?
Um þetta eru reglur í 27. gr. ATL. Skv. þeim eru launþegar og at-
vinnurekendur einungis tryggðir gegn slysum, sem verða við vinnu.
Skv. 2. mgr. 27. gr. telst maður vera við vinnu:
a. Þegar hann er á vinnustað, á þeim tíma, sem honum er ætlað að
vera að störfum, svo og í matar- og kaffitímum.
b. í sendiferðum í þágu atvinnurekstrar eða í nauðsynlegum ferð-
um til vinnu og frá, enda sé aðeins um að ræða ferðir, sem farnar
eru samdægurs milli vinnustaðar og heimilis eða matstaðar. Sama
gildir um lengri ferðir af þessu tagi, ef starfsmaður er á launum
hjá vinnuveitanda í ferðinni.
Af framangi-eindu er ljóst, að slysatryggingin nær til ýmissa slysa
annarra en vinnuslysa í þrengstu merkingu þess orðs.
1 3. mgr. 27. gr. ATL eru frekari ákvæði um, hvað teljist vera slys
við vinnu. Það telst ekki vera slys við vinnu, ef slys hlýst af athöfnum
slasaða sjálfs, er ekki standa í neinu sambandi við vinnuna. Vafi getur
leikið á því, hvernig beri að skýra orðin „ekki standa í neinu sambandi
við vinnuna". Hve fjarlægt þarf slysið að vera störfum slasaða til þess
að bótaréttur glatist? Þessari spurningu getur verið erfitt að svara.
Þó virðist Ijóst, að slys, sem verða t. d. vegna áfloga á vinnustað, ber
ekki að bæta skv. lögunum.3 Búast má við, að nokkuð oft komi upp
tilvik, þar sem slysið er í litlum eða engum tengslum við vinnuna
sjálfa, ekki síst sökum þess að lögin taka til slysa, er verða í matar-
og kaffitímum og á leið til vinnu og frá. Sem dæmi má nefna, er laun-
þegi slasast í knattspyrnu með vinnufélögum sínum í matarhléi. Slysa-
tryggingin myndi ekki ná til slíks slyss. Benda má á, að slysatrygg-
ingunni er skylt að greiða bætur vegna umferðarslyss, sem starfs-
maður verður fyrir á ferðum til vinnustaðar og frá, ef bótaskilyrðum
láganna er að öðru leyti fullnægt.
Um slys á sjómönnum gildir sú sérregla skv. 3. mgr. 27. gr. ATL,
að tryggingin tekur til allra slysa, sem verða um borð í skipi sjómanns-
ins, svo og slysa á sjómanni, þegar hann er staddur ásamt skipinu
utan heimahafnar eða útgerðarstaðar skips. Þessi sérregla felur það
m. a. í sér, að greiða ber bætur fyrir slys, er hljótast af athöfnum,
sem standa í engu sambandi við vinnu sjómanns, eins og t. d. slys af
völdum skotvopns, sem sjómaður hefur með höndum um borð í skipi
3 Úrlausn þessa atriðis þarf ekki að vera á sömu lund og í skaðabótarétti að því
er varðar ábyrgð atvinnurekanda á saknæmum verkum starfsmanna, sbr. Hrd. 1962, 74.
148