Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1975, Blaðsíða 12

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1975, Blaðsíða 12
Telja verður, að það sé ekki slys í merkingu laganna, þegar launþegi veldur sér áverka viljandi, t. d. fremur sjálfsmorð. (Síðastgreint úr- lausnarefni myndi þó ekki hafa sjálfstæða þýðingu nema um sjómenn, vegna skilyrðisins um, að ekki beri að bæta slys, er hljótast af athöfn- um slasaða sjálfs, sem ekki standa í neinu sambandi við vinnuna, sbr. 3. mgr. 27. gr.) Slysatryggingin getur stundum náð til sjúkdóma. Eftir 4. mgr. 27. gr. ATL teljast til slysa sjúkdómar, sem stafa af skaðlegum áhrifum efna, geislaorku eða öðru hliðstæðu, er ríkjandi eru í mesta lagi fáeina daga og rekja verður til vinnunnar. 1 janúar 1963 varð sá hörmulegi atburður í botnvörpungi, sem var að veiðum, að átján skipverjar sýkt- ust af eitruðu efni, er barst frá kælikerfi skipsins. Einn sjómannanna lést, en nokkrir biðu varanlegt heilsutjón. Tryggingastofnun ríkisins greiddi slysabætur skv. ákvæði í lögum nr. 40/1963 um almannatrygg- ingar, sem svaraði til 4. mgr. 27. gr. núgildandi ATL. Hér voru áhöld um, hvort óhappið stafaði af skyndilegum atburði. Hvað sem því líður, má ætla, að flestir geti verið sammála um, að atburður sem þessi kall- ast slys skv. almennri málvenju. Líklega yrði það heimfært undir slys skv. ATL, þótt ekki væri um að ræða beinan áverka á líkama, t. d. þegar maður yrði fyrir andlegu áfalli, svo sem losti (um skaðabótamál vegna slíks áfalls, sjá Hrd. 1972, 191). 6. Réttaráhrif þess, að bótaþegi á sjálfur sök á slysi eða afleiðingum þess Réttur bótaþega til slysatryggingarbóta skerðist ekki, þótt hann valdi slysi af gáleysi. (Um ásetningsverk, sjá 5. kafla hér á undan.) Sama er að segja, þó að slys hafi orðið vegna ölvunar bótaþega eða notkunar deyfilyfja. Atvik sem þessi gátu haft áhrif á bótarétt bóta- þega skv. eldri ATL (sjá 59. gr. 1. nr. 40/1963). Hins vegar missir bótaþégi rétt til slysatryggingarbóta, sem ætlaðar eru honum sjálfum, ef hann vanrækir að fai'a að læknisráðum eða neit- ar að hlíta fyrirmælum um þátttöku í þjálfun eða starfsnámi, sem bætt gæti afkomu hans eða búið hann undir nýtt starf, 53. gr. ATL. Deyi slysatryggður vegna vanrækslu á því að fara að fyrirmælum lækna eftir slys, eiga aðstandendur hans (sbr. 35. gr.) fullan rétt til slysabóta. önnur ákvæði um brottfall réttar bótaþega vegna saknæmrar hegð- unar eru ekki í ATL, sjá þó til athugunar heimildarákvæði í 2. mgr. 57. gr. varðandi svik af hálfu bótaþega. 150
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.