Tímarit lögfræðinga - 01.12.1975, Blaðsíða 47
SKÝRSLA UM FÉLAGSSTÖRFIN 1974—75
1. Stjórn.
Aðalfundur var haldinn 11. desember 1974, í TL, 4. hefti 1974, segir frá því,
hverjir voru kosnir sýslunarmenn í félaginu á þeim fundi. Stjórnarmenn voru:
Jónatan Þórmundsson, Stefán Már Stefánsson, Hjalti Zóphóníasson, Jón
Steinar Gunnlaugsson, Kristjana Jónsdóttir, Brynjólfur Kjartansson og Þor-
valdur Grétar Einarsson. — Félagið hafði ekki, fremur en áður, fastan laun-
aðan starfsmann og enga eigin skrifstofuaðstöðu. Stjórnarfundir og flestir
félagsfundir voru haldnir í Lögbergi.
2. Félagsfundir.
Haldnir voru 6 fræðafundir, þar af 2 hádegisverðarfundir. Umræðuefni, fyr-
irlesarar og fundardagar voru sem hér segir:
a) Réttaröryggi í stjórnsýslu 5. febrúar.
Þór Vilhjálmsson prófessor og Ólafur Jónsson form. Barnaverndarráðs.
Fundarmenn voru 55.
b) Réttarstaða kvenna 21. febrúar (hádegisfundur).
Dr. Gunnlaugur Þórðarson. Fundinn sóttu um 60 manns.
c) Court Reform 4. marz.
Dr. Henry J. Abraham frá Háskólanum í Virginíu, Bandaríkjunum.
d) Barnaréttindi 31. október (hádegisfundur).
Guðrún Erlendsdóttir hrl. Fundinn sóttu um 60 manns.
e) Development of Human Rights 26. nóvember.
Prófessor George Thompson frá Western New England College, Massa-
chusettsríki í Bandaríkjunum, nú gistiprófessor við lagadeild.
f) Almenn heimild til lækkunar skaðabóta.
11. desember (aðalfundur).
Gestur Jónsson cand. jur.
Haldnir voru 10 stjórnarfundir á starfsárinu.
3. Námskeið í félagarétti.
Félagið efndi til námskeiðs í félagarétti 3. maí að Flúðum í Hrunamanna-
hreppi. Námskeiðið var vel sótt. Framkvæmdastjóri þess var Páll Skúlason
bókavörður. Formaður flutti ávarp og ræddi um félög og félagafrelsi. Hrafn
Bragason flutti erindi um réttarstöðu eigenda í sameignarfélögum, Brynjólfur
Kjartansson um stjórn hlutafélaga og samvinnufélaga og Stefán Már Stefáns-
son um afstöðu félagsmanna í almennum félögum til félagsins. Þeir Skúli
Pálmason, Már Pétursson og Skarphéðinn Þórisson reifuðu hæstaréttardóma
á þessu sviði.
4. Tímarit lögfræðinga.
Alls komu út 4 hefti af 24. árgangi (1974). Af 25. árgangi eru komin út 2
hefti, en þau verða alls fjögur. Theodór B. Líndal ritstjóri andaðist 2. febrúar
s.l. Hafði hann verið ritstjóri allt frá árinu 1954. Hinn 2. júní s.l. var Þór Vil-
hjálmsson ráðinn ritstjóri tímaritsins, en hann hafði frá áramótum 1972—
1973 annast ritstjórnina ásamt Thedór. Að undanförnu hafa engar greiðslur
komið fyrir þetta starf. Stjórnin ákvað á fundi í byrjun desember að greiða
ritstjóra ársþóknun, er svari til mánaðarlauna prófessors. Kristjana Jónsdóttir
185