Tímarit lögfræðinga - 01.12.1975, Blaðsíða 29
eru ekki háð skipunarvaldi einstakra ráðherra eða ráðuneyta. Staða
lægra settra stjórnvalda er því almennt sjálfstæðari í Svíþjóð en á
Islandi.
Beint undir ríkisstjórnina heyra t. d. sérstakar ríkisstofnanir, cen-
trala ámbetsverk, er taka til landsins alls. Sömuleiðis lénsstjórnir,
lánsstyrelser, er fara með stjórn ýmissa sérmála lénanna, en lénin eru
24 talsins. Undir lénsstjórnir heyra stjórnvöld, er taka til enn minni
umdæma.
Sjálfstæði sænskra sveitarfélaga er jafnvel enn fastara í sessi en
tíðkast annars staðar. Hinum eiginlegu sveitarfélögum hefur fækkað
mjög á síðustu árum, og eru þau nú ,,aðeins“ 278 talsins. I hverju
þeirra er kjörin fjölmenn sveitarstjórn, er kýs sveitarráð, kommun-
styrelse, í líkingu við borgar- og bæjarráð. Ráðið annast daglega stjórn
sveitarfélagsins. Sveitarstjórnin kýs einnig nefndir til að fara með ein-
staka málaflokka. Nefndir þessar eru tvenns konar: Ýmist starfa þær
eftir fyrirmælum lága eða eru settar á stofn af sveitarstjórn til að
létta álagi af sveitarráði. Þess má geta, að í flestum lénanna starfa
annars konar sveitarstjórnir, landsting, en verkefni þeirra eru afmörk-
uð og verksviðið mun takmarkaðra en hinna eiginlegu sveitarstj órna.
Ákvörðun stjórnvalds verður yfirleitt kærð, annaðhvort til æðra
stjórnvalds eða stjórnsýsludómstóls. Gilda nokkuð flóknar reglur um
það, hvert ákvörðun verður skotið. Helstu stjórnsýsludómstólarnir
mynda nú þrjú dómstig: Lánsrátter, lánsskatterátter og fastighets-
taxeringsrátter (í lénum) — þrír kammarrátter (í Stokkhólmi, Gauta-
borg og Sundsvall) — regeringsrátten. Sama mál getur komið fyrir
öll þrjú dómstigin, en hlutverk æðsta stjórnsýsludómstólsins er þó nær
eingöngu fólgið í því að mynda fordæmi á sviði stjórnarframkvæmda.
2.0. Efni.
Stjórnsýslulögin (FL) eru alls 20 greinar og skiptast í þrjá kafla:
Sá fyrsti (1.—3. gr.) fjallar um gildissvið laganna, annar (4.—13. gr.)
ber yfirskriftina „Almenn ákvæði“, þriðji (14.—20. gr.) yfirskriftina
„Sérstök ákvæði“.
2.1. Gildissvið.
2.1.1. FL ná ekki aðeins til málsmeðferðar hjá stjórnvöldum heldur og
hjá dómstólum, þegar um er að ræða mál, er snerta rekstur dómstól-
anna, t. d. starfsmannahald, sbr. 1. 'gr. 1. mgr. laganna.
Hugtakið „stjórnvald“, „förvaltningsmyndighet“, er ekki skilgreint
í FL, en af lögskýringargögnum leiðir, að það er mjög víðtækt. Sænskir
167