Tímarit lögfræðinga - 01.12.1975, Blaðsíða 52
Launaflokkar: Með þessum samningi er launaflokkum fækkað úr 30 í 20
með því að skera af launastiganum 10 neðstu flokkana. Svara hinir umsömdu
launaflokkar til núverandi launaflokka A 11 — A 30. Þetta hefur þó enga raun-
hæfa þýðingu, þar sem félagsmenn í BHM munu nú ekki taka laun skv. 10
neðstu fiokkunum. Þá er ráð fyrir því gert, að reisn launastigans verði sú
sama og hún var skv. Kjaradómi frá 15. febrúar 1974, en eins og mönnum er
kunnugt hefur sú reisn raskast nokkuð vegna hinna ,,flötu“ greiðslna, sem
síðar áttu sér stað.
Rétt er að taka það fram, að heimilt er að auka við einum launaflokki (A 31),
ef ekki næst eðlilegt innbyrðis samræmi við skipan starfa í launaflokka innan
ramma launastigans.
Launahækkanir: Heildarupphæð mánaðarlauna miðað við laun, eins og þau
verða i júní 1976, skal hækka um 3% hinn 1. júlí 1976, um 5% hinn 1. október
1976 og um 5% hinn 1. febrúar 1977. Hækkanir þessar eru ,,kumulativar“, en
breyting launastigans er innifalin í þeim. Þá skulu öll laun enn hækka um 4%
hinn 1. júlí 1977.
Um tímabilið frá undirritun samningsins (9/12 1975) til gildistöku hans (1.
júlí 1976) var gerð sérstök bókun þess efnis, að verði almennar og verulegar
kaup- og kjarabreytingar á almennum vinnumarkaði á þessu tímabili, þá skuli
félagsmenn BHM hljóta sambærilegar kjarabætur. Rétt er að vekja athygli á
því, að hér er ekki eingöngu átt við kauphækkanir, heldur einnig aðrar „kjara-
breytingar", svo sem skattalækkanir, bætt Iífeyrisréttindi, fyrirgreiðslu í sam-
bandi við húsnæðismál, og fleiri kjarabreytingar geta komið til greina. Komi
upp ágreiningur um þessi atriði milli samningsaðila, sker Kjaradómur úr.
Verðlagsbætur á laun: Um verðlagsbætur á laun er rétt að vitna til 4. gr.
samningsins, en þar segir m. a. svo:
„Frá 1. apríl 1977 skulu laun hækka um þá prósentutölu, sem vísitala fram-
færslukostnaðar í febrúar 1977 hefur hækkað umfram 12% frá framfærslu-
vísitölu hinn 1. júlí 1976, er skal vera grunnvísitala til ákvörðunar verðlags-
uppbóta samkvæmt sátt þessari. Framfærsluvísitala hinn 1. júlí 1976 telst vera
maívísitala 1976 að viðbættum eða frádregnum % hlutum þeirrar breytingar
á henni, sem á sér stað á tímabilinu 1. maí — 1. ágúst 1976. Frá 1. júní 1977
og síðan ársfjórðungslega út samningstímabilið skal greiða verðlagsuppbót
er nemur prósentuhækkun framfærsluvísitölu umfram 12% frá 1. júlí 1976
samkvæmt fyrrgreindu og til 1. maí, 1. ágúst og 1. nóvember 1977, og til 1.
febrúar og 1. maí 1978.“
Röðun í launaþrep: Með þessum samningi verður grundvallarbreyting við
röðun starfsmanna í launaþrep, enda hafa núgildandi reglur um þetta valdið
talsverðum ágreiningi og örðugleikum í framkvæmd. Samkvæmt hinum nýja
samningi verða launaþrepin 5 áfram, en í stað starfsaldurs og starfsreynslu
skal nú raða í þrepin eftir lífsaldri starfsmanns þannig:
,Aldur
32 ára eða eldri
Launaþrep
5
4
3
2
1“
27 ára til og með 31 árs
25 ára til og með 26 ára
23 ára til og með 24 ára
Undir 23 ára
190