Tímarit lögfræðinga - 01.12.1975, Side 13
7. Tegaindir bóta og fjárhæðir
Bætur slysatryggingar eru sjúkrahjálp, dagpeningar, örorkubætur
og dánarbætur, 31. gr. ATL. Má því skipta slysabótum í 4 meginflokka:
1. Bætur fyrir sjúkrakostnað skv. 32. gr. ATL.
2. Bætur fyrir tímabundna örorku, þ. e. dagpeningar skv. 33. gr.
ATL.
3. Bætur fyrir varanlega örorku skv. 34. gr. ATL.
4. Dánarbætur skv. 35. gr. ATL.
7.1. Bætur fyrir sjúkrakostnað
Ségja má, að í stórum dráttum greiði slysatryggingin allan nauð-
synlegan kostnað vegna lækningar hins slasaða og tjóns á gervilimum
og öðrum svipuðum hjálpartækjum. Allir algengustu kostnaðarliðir eru
greiddir að fullu, svo sem læknishjálp, sjúkrahúsvist, lyf, tannviðgei’ð-
ir, gervilimir, sjúkraflutningur fyrst eftir slys og sjúkraþjálfun, sjá
nánar 32. gr. ATL. Skv. þeirri gr. er heimilt að greiða fyrir hjúkrun
í heimahúsum, sem veitt er af vandalausum, og styrk upp í kostnað
við þær tannviðgerðir, er ekki bætast að fullu eftir aðalreglunni í 32. gr.
Það er skilyrði fyrir greiðslu bóta vegna sjúkrakostnaðar, að slys
valdi sjúkleika og vinnutjóni í minnst 10 daga.
7.2. Bætur fyrir tímabundna örorku
Ef slasaði verður óvinnufær í a. m. k. 10 daga, á hann rétt á bótum
fyrir tímabundna örorku, svonefndum dagpeningum. Greiðast þeir frá
og með 8. degi eftir að slys varð, 33. gr. ATL. Um það, hvenær greiðslu
dagpeninga lýkur, eru reglur 1 1. mgr. 33. gr.
Dagpeningar nema nú 870 kr. á dag. Hafi slasaði barn eða börn á
framfæri, greiðast auk þess 188 kr. fyrir hvert bara. Ef slasaði heldur
óskertum launum, þó að hann sé óvinnfær, fær hann enga dagpeninga.
Nánari reglur um rétt slasaða til dágpeninga eru í 33. gr.
Aðalreglan er sú, að það er slasaði sjálfur, sem á rétt á dagpeningum.
Vinnuveitandi hans öðlast þó rétt til dagpeninga, ef vinnuveitandi
greiðir slasaða laun í veikindaforföllum, sbr. 5. mgr. 33. gr.
7.3. Bætur fyrir varanlega örorku
Bætur greiðast aldrei fyrir varanlega örorku, sem er minni en 15%.
örorkubótum skv. 34. gr. ATL má skipta í tvennt: Annars végar eru
bætur fyrir varanlega örorku frá 15% upp í 49%. Sú örorka er
venjulega bætt með greiðslu, sem innt er af hendi í eitt skipti fyrir öll
(svonefnd eingreiðsla). Eingreiðslan jafngildir lífeyri hlutaðeiganda
151