Tímarit lögfræðinga - 01.12.1975, Page 48
Á aðalfundinum: Páll S. Pálsson formaður Lögmannafélagsins, Hákon Guðmundsson fundar-
stjóri, Jóhannes L. L. Helgason nýkjörinn formaður, Jónatan Þórmundsson formaður 1974—'75.
tók við framkvæmdastjórn af Þorvaldi Grétari Einarssyni. Afgreiðslumaður
tímaritsins er sá sami og verið hefur, Hilmar Norðfjörð.
5. Störf rikisstarfsmannadeildar.
Aðalfundur deildarinnar var haldinn 22. janúar. í deildarstjórn voru kjörnir:
Stefán Már Stefánsson (formaður), Valtýr Sigurðsson og Jón Thors. Aðal-
fundur deildarinnar verður í janúar 1976 og munu væntanlega birtast fréttir
frá honum í tímaritinu síðar.
6. Bandalag háskóiamanna.
Um starfsemi BHM vísast til skýrslna Ragnars Aðalsteinssonar og Magn-
úsar Thoroddsen. Er skýrsla Magnúsar um ný launaákvæði í þessu hefti, en
skýrsla Ragnars um almenna starfsemi BHM birtist í 1. hefti 1976.
7. EndurskoSun félagatals.
Á árinu var gert verulegt átak til endurnýjunar félagatals. Varð sá árangur
af því, að um 50 lögfræðingar gengu í félagið.
8. Ráðstefnur.
Lögfræðingafélagið átti aðild að undirbúningi ráðstefnu BHM um atvinnumál
háskólamanna. Var Jón Steinar Gunnlaugsson hdl. fulltrúi félagsins í undirbún-
ingsnefnd. Ráðstefnan var haldin 14.—15. nóvember s.l. Fulltrúar félagsins
voru: Kristjana Jónsdóttir, Jóhannes L. L. Helgason og Jónatan Þórmunds-
son, og nokkrir aðrir lögfræðingar sátu ráðstefnuna á annarra vegum.
Þór Vilhjálmsson sótti fyrir hönd félagsins ráðstefnu í Amsterdam dagana
26.—28. september s.l., en þar var fjallað um efnið: ,,The use of legitimate
force to control civil disorder." Var ráðstefnan haldin á vegum alþjóða lög-
fræðinganefndarinnar, deildanna í Austurríki, Bretlandi og Vestur-Þýskalandi.
9. Samvinna norrænna lagamanna.
Árlegur fundur starfsmanna norrænu lögfræðingasamtakanna (Nordisk
sekretariatsmode) var haldinn 4.—5. september s.l. í Lyngby Storcenter við
Kaupmannahöfn. Formaður félagsins sótti fundinn. Sagðar voru almennar
fréttir af félagsstarfinu í öllum löndunum. Síðan var rætt um þessi efni: ár-
gjaldapólitík, starfsöryggi forstöðumanna í opinberri stjórnsýslu, fræðslu-
pólitík og framhaldsmenntun (endurmenntun, símenntun) lögfræðinga. Mun
fundi þessum verða gerð betri skil í Tímariti lögfræðinga.
Jónatan Þórmundsson
186