Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1975, Qupperneq 50

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1975, Qupperneq 50
ráðist af því, hvaða stefnu verður fylgt í atvinnu- og rannsóknarmálum. Ný starfssvið fyrir lögfræðinga eru til og hefur verið bent á ýmsa stjórnsýslu, bæði störf á vegum ríkis og sveitarfélaga, einkum við samningu lagafrum- varpa og almennra stjórnsýslufyrirmæla, svo og við uppkvaðningu úrskurða. Prófessor Þórir Einarsson flutti næstur framsöguerindi. Bar það yfirskrift- ina „Hvað hefur ráðið þróun kennslu á háskólastigi fram til þessa?“ Með erindinu lagði Þórir fram töflu með upplýsingum um stúdenta við H.í. 1970— 1975. Á þessari töflu mátti sjá, að mjög algengt er, að stúdentar hætti námi. Ragnar Halldórsson forstjóri flutti erindi: „Er núverandi stjórnun í þjóðfélag- inu til þess fallin, að háskólamenntað starfsfólk nýtist með eðlilegum hætti?“ Ragnar ræddi m. a. um það, að atvinnulífið hér á landi einkenndist af mjög smáum einingum og að mjög smáar rekstrareiningar gætu ekki staðið undir launagreiðslum til háskólamenntaðra sérfræðinga. Gat Ragnar þess, að rannsóknarstarfsemi hér á landi hefði átt erfiðara uppdráttar en í flestum menningarlöndum. Taldi Ragnar, að orsakir þess mætti að nokkru rekja til þessara smáu rekstrareininga í atvinnulífi okkar. Bjarni Bragi Jónsson hagfræðingur flutti erindi um mannaflaspár og notk- un þeirra við áætlanagerðir. Jóhann Hannesson menntaskólakennari ræddi spurninguna, hvort ríkja ætti stjórnun um aðgang að háskólanámi eða hvort einstaklingsákvarðanir eigi að ráða ferðinni. Fulltrúi frá S.H.Í., Arnlín Óla- dóttir, flutti síðan erindi um námsval stúdenta. Umræður um þessi efni öll urðu mjög fjörugar. Seinni dag ráðstefnunnar var fjallað um framtíðarverkefni og þarfir fyrir háskólamenntað starfsfólk á sviði heilbrigðismála, iðnaðar, landbúnaðar, sjáv- arútvegs, byggingarstarfsemi og mannvirkjagerðar, verslunar og viðskipta, kennslu og rannsókna í raunvísindagreinum, kennslu og rannsókna í hugvís- indagreinum og opinberrar stjórnsýslu. Þeir sem framsöguerindi fluttu voru: Örn Bjarnason, Vilhjálmur Lúðviksson, Magnús B. Jónsson, Eggert Jónsson, Óttar Halldórsson, Þorvarður Elíasson, Örn Helgason, Vésteinn Ólason og Jón Böðvarsson. Þegar umræður um þessi efni höfðu farið fram, tóku vinnuhópar til starfa. Fjölluðu þeir um fjögur efni: a) Er hætta á offjölgun háskólamenntaðra manna? b) Á að stjórna aðgangi að háskólanámi? c) Ný verkefni fyrir háskólamenntað starfsfólk. d) Stuðlar núverandi stjórnun að eðlilegri nýtingu á háskólamenntuðu starfsfólki? Ráðstefnunni lauk síðan með því, að vinnuhóparnir skiluðu skýrslu um störf sín. Margt fróðlegt kom fram í umræðum þennan síðari dag ráðstefn- unnar, þó að ekki sé unnt að rekja það hér. Hins vegar er ástæða til að und- irstrika mikilvægi þeirra upplýsinga, sem fram koma í skýrslu Magnúsar Skúla- sonar um fjölda háskólamanna, og af þeim sökum eru þær birtar með þessari fréttagrein. 188 Kristjana Jónsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.