Tímarit lögfræðinga - 01.12.1975, Side 60
t. d. um fresti, málskostnað, ómaksbætur, vitnaskyldu og fleiri sambærileg
úrlausnarefni. Einnig að láta einföld mál sæta í ríkari mæli sérstakri meðferð
líkt og áskorunarmál nú, afnám sáttanefnda og sjó- og verslunardóms, breyt-
ingar á áfrýjunarreglum, styttingu dómsúrlausna o. s. frv., o. s. frv.
Almennur félagsfundur, sem haldinn var hinn 10. maí, sendi frá sér ályktun
um ofangreind efni. Spunnust af því tilefni allmikil blaðaskrif, öll dagblöðin
tóku málið upp og birtu greinar eftir ýmsa aðila um réttarfarsmálefni. Rauði
þráðurinn í þeim flestum var gagnrýni á dómsmálaráðuneytið og löggjafar-
valdið. Augu manna virtust opnast fyrir því, að það er ekki við dómstóla eina
að sakast um seinagang dómsmála. Dómarar hafa bent á úrbótaleiðir, en
þeim tillögum hefur ekki verið sinnt.
Stjórn Dómarafélags Reykjavíkur greip nú tækifærið til þess að fá upp
umræðu um þessi mál og sendi frá sér ýtarlega grein, sem birtist í dag-
blöðum hinn 16. apríl. Var greinin heildarreifun á sjónarmiðum félagsins og
þar komið að öllum helstu tillögum, sem félagið hefur sett fram undanfarið.
Nærtækt er að ætla að sú athygli sem nú beinist að réttarfarsmálefnum
stuðli að því að umbótum á réttarfarslöggjöfinni verði hraðað.
I stjórn Dómarafélags Reykjavíkur fyrir næsta starrfsár voru kjörnir: Har-
aldur Henrysson sakadómari, formaður, Sigurður M. Helgason borgarfógeti,
varaformaður, Magnús Thoroddsen borgardómari, gjaldkeri, Már Pétursson
héraðsdómari, ritari, og Sverrir Einarsson sakadómari, meðstjórnandi.
Már Pétursson
I stjórn Sýslumannafélagsins eru nú: Ásgeir Pétursson formaður, Björn Her-
mannsson varaformaður, Andrés Valdimarsson, Björn Fr. Björnsson og Páll
Hallgrímsson.
198