Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1981, Page 7

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1981, Page 7
væri ákærður fyrir landráð. Hinir almennu dómstólar fjalla fyrst og fremst um opinber mál og einkamál. Sérdómstólar hafa verið settir á fót fyrir stjórnsýslumál svo og viss önnur mál. Um sum mál fjalla hinir almennu dómstólar skipaðir á sérstakan hátt. Ágreiningur um stjórnsýslumálefni — þar á meðal skattamál — kemur fyrst fyrir framkvæmdarvaldshafa, en lokameðferðin er í höndum Æðsta stjórnsýsludómstólsins. Er skipan hans að mestu með sama hætti og Hæstaréttar. Lægri stjórnsýslu- dómstólar með föstum dómurum tíðkast ekki. Frá þessu eru nokkrar undantekningar. 1 tengslum við lénsstjórnirnar, sem eru 10, eru þó svokallaðir lénsréttir, er starfa sem dómstólar. Líklegt má telja, að ekki verði gerðar tillögur um að stofna nýja lægri stjórnsýsludómstóla, eins og í Svíþjóð, en í staðinn verði reynt að koma nýrri skipan á störf lénsréttanna. Hinir eiginlegu sérdómstólar, sem hér verða nefndir, eru jarðadóm- arnir, en mál frá þeim ganga til Hæstaréttar, vatnadómarnir, en ákvörð- unum þeirra verður eftir efni ýmist skotið til Æðsta stjómsýslu- dómstólsins eða Hæstaréttar, Tryggingarétturinn, en ákvörðunum hans um almannatryggingamál verður skotið til Hæstaréttar eða Æðsta stjórnsýsludómstólsins, Félagsdómur, sem fjallar um kjaraágreining, og Markaðsdómstóllinn, sem fjallar um viss mál varðandi neytenda- vernd. Þeir tveir dómstólar, sem síðast voru nefndir, fjalla um mál sem fyrsta og síðasta dómstig, dómum þeirra verður ekki áfrýjað. Yrðu alvarleg mistök í störfum þeirra, gæti Hæstiréttur þó lýst dóm þeirra úr gildi fallinn. Hingað til hefur þó ekki til þess komið. Dóma stjórnsýsludómstólanna getur Hæstiréttur ekki fellt úr gildi. Æðsti stjórnsýsludómstóllinn er þannig jafnsettur Hæstarétti, þó þannig, að ágreining milli þessara tveggja dómstóla um valdmörk þeirra úrskurð- ar Hæstiréttur. 3) Eins og ráða má af því, sem nú var sagt, eru nokkur ellimörk á finnska dómskerfinu, eins og það er nú, og kemur það ekki síst fram hjá almennu dómstólunum. 1 ýmsum atriðum hafa engar breytingar, sem máli skipta, verið gerðar um áratuga skeið, og um sumt er kerfið að mestu óbreytt frá því sem var á 18. öld. Síðustu 100 árin hafa margar tilraunir verið gerðar til að endurskoða réttarfarið frá grunni, en allar hafa þær misheppnast. Þeir sem ekki kunna góð skil á sögu Finnlands, munu undrast, að árangur hefur ekki náðst. Þeim sem söguna þekkja, veitist léttara að skilja, hvað á hefur skort, enda má svipað segja um önnur réttarsvið. Stjórnmálaórói og styrjaldir hafa sett mark sitt á sögu okkar á þessari öld í ríkara mæli en sögu margra 57

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.