Tímarit lögfræðinga - 01.09.1981, Blaðsíða 61
ara við sækjanda og verjanda. Framsögur höfðu þeir Hallvarður Einvarð-
son rannsóknarlögreglustjóri og Páll A. Pálsson hrl.
2. Þá var rætt um efnin: Aðstaða lögmanna við dómaraembættin, úthlutun
mála, málatilbúnaður, samskipti dómara og lögmanna um meðferð ein-
staks máls. Framsögumenn voru Þór Vilhjálmsson hæstaréttardómari og
Guðmundur Ingvi Sigurðsson hrl.
3. Loks var fjallað um ákvarðanir um málskostnað (gjafvörn), málsvarnar-
laun og réttargæzluþóknun. Framsögu um þessi efni hafði Ragnar Aðal-
steinsson hrl.
Hádegisverðarhlé var gert kl. 12.40.
Eftir hádegisverðarhlé kl. 14 hófu umræðuhópar störf. Skiptust menn í 3
hópa, sem hver um sig fjallaði um eitt af dagskrárefnunum, sem að ofan getur.
Umræðustjórar voru Haraldur Henrýsson sakadómari í hópi 1, Steingrímur
Gautur Kristjánsson borgardómari í hópi 2 og Ólafur St. Sigurðsson héraðs-
dómari í hópi 3.
Kl. 16.00 komu þátttakendur saman á ný til kaffidrykkju og síðan var gerð
grein fyrir umræðum í hópunum. Grein fyrir umræðum I hópi 1 gerði Hrafn-
kell Ásgeirsson hrl., í hópi 2 Hákon Árnason hrl. og Jón E. Ragnarsson hrl.
í hópi 3.
Þessum þætti námsstefnunnar lauk kl. rúmlega 17.00. Dvöldust þátttak-
endur áfram á staðnum til kl. 18.30, en þá var haldið til Reykjavíkur.
Jón Steinar Gunnlaugsson.
22. NORRÆNA LAGANEMAMÓTIÐ
22. norræna laganemamótið var haldið í Osló og í Wadahl 13.—20. júní s.l.
Skráðir til þátttöku voru 64 stúdentar og 25 fyrirlesarar. Aðalumræðuefnið
var: MANNRÉTTINDI í VELFERÐARRÍKINU. Mótið var vandlega undirbúið,
og stóð 6 manna nefnd stúdenta fyrir því. Formaður var Jorn H. Hammer.
Frá islandi sóttu mótið 12 laganemar og tveir fyrirlesarar. Fararstjóri
íslenska hópsins var Lilja Ólafsdóttir formaður Orators, en aðrir þátttakendur:
Anna Th. Gunnarsdóttir, Ásgeir Þór Árnason, Ásgeir Eiríksson, Einar Örn
Thorlacius, Erla S. Árnadóttir, Friðjón Örn Friðjónsson, Guðrún Ásta Sig-
urðardóttir, Jón Finnbjörnsson, Magnús Guðlaugsson, Margeir Pétursson og
Una Þóra Magnúsdóttir. Fyrirlesarar voru dr. Ármann Snævarr, er talaði um
upplýsingavernd, og Þór Vilhjálmsson, sem ræddi þörf endurskoðunar á
stjórnarskrárvernd mannréttinda.
Frá laganemamótinu verður nánar sagt í Úlfljóti.
111