Tímarit lögfræðinga - 01.09.1981, Blaðsíða 59
Hult frá Svíþjóð og Björn Sveinbjörnsson. Fundarritari var prófessor Sigurður
Líndal, en Björn Helgason hæstaréttarritari sá að öðru leyti um framkvæmdir
tengdar fundinum. Að venju voru á fundinum sagðar fréttir frá starfi dóm-
stóla í hinum norrænu löndum. Þá var rætt um ágripsgerð í hæstaréttar-
málum.og um nokkurönnur efni.
RÉTTARFARSNEFND
Mannaskipti hafa orðið í réttarfarsnefnd, en hún var skipuð 1972 ,,til að
fjalla um dómstólakerfi landsins á héraðsdómsstiginu og málsmeðferð í hér-
aði“. Fyrsti formaður nefndarinnar, Björn Sveinbjörnsson hæstaréttarforseti,
lét af störfum í nefndinni að eigin ósk í júní s.l., en áður höfðu beðist lausnar
Björn Fr. Björnsson fyrrv. sýslumaður og Sigurgeir Jónsson hæstaréttar-
dómari. Nefndin er nú þannig skipuð: Þór Vilhjálmsson hæstaréttardómari
(formaður), Ásgeir Pétursson bæjarfógeti, Friðgeir Björnsson borgardómari,
Halldór Þorbjörnsson yfirsakadómari og Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta-
réttarlögmaður.
FRÁ ALÞINGI
Alþingi, 103. löggjafarþing, sem sett var 10. október 1980 og slitið 25. maí
1981, samþykkti 97 lög. Skulu hér nefnd nokkur þeirra, sem ætla má, að
lögfræðingar þurfi helst um að fjalla, en að öðru leyti er um lögin vísað til
Stjórnartíðinda:
Lög nr. 82/1980 um breyting á lögum um stimpilgjald nr. 36/1978
Lög nr. 91/1980 um skráningu lífeyrisréttinda
Barnalög nr. 9/1981
Lög nr. 20/1981 og nr. 69/1981 um breyting á hegningarlögunum
Lög nr. 24/1981 um breyting á tékkalögunum
Lög nr. 28/1981 um breyting á einkamálalögunum og lög nr. 34/1981 um
breyting á lögum nr. 52/1970 um eftirlit með skipum (um siglingadóm)
Lög nr. 33/1981 um breyting á lögum nr. 35/1960 um lögheimili
Lög nr. 44/1981 um horfna menn
Lög nr. 55/1981 um breyting á umferðarlögunum
Lög nr. 63/1981 um kerfisbundna skráningu á upplýsingum, er varða
einkamálefni
Lög nr. 64/1981 um atvinnuleysistryggingar
Gerðar voru 47 þingsályktanir. Verður örfárra þeirra getið hér:
Þingsályktun 17. febrúar um réttarstöðu fólks í óvígðri sambúð. Þar segir:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta nú þegar fara fram könn-
un á réttarstöðu fólks í óvigðri sambúð.
í því skyni skipi viðkomandi ráðherra nefnd er geri tillögur um hvernig
réttindum þess verði best fyrir komið, sérstaklega með tilliti til eignarréttar
og erfðaréttar.
109