Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1983, Blaðsíða 12

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1983, Blaðsíða 12
RAGNARJÓNSSON Vinur minn og samstarfsmaður Ragnar Jóns- son hæstaréttarlögmaður andaðist 14. maí 1983. Hann fæddist í Reykjavík 6. febrúar 1906. Foreldrar hans voru Jón Sigmundsson gullsmið- ur frá Skarfsstöðum í Hvammssveit í Dölum og kona hans Ragnhildur Sigurðardóttir frá Dýra- stöðum í Norðurárdal í Borgarfirði. Ragnar stundaði nám í Menntaskólanum f Reykjavík og varð stúdent þaðan 1927. Þá lá leiðin í lagadeild Háskóla íslands, og að því er virðist mun það val hafa legið beint við, því að í menntaskóla var hann mikill áhuga- maður í málfundafélaginu Framtíðinni og for- seti félagsins. Hann útskrifaðist frá Háskóla ís- lands 13. febrúar 1932. Þaðan lá leiðin til fram- haldsnáms í London og Berlín, og lagði hann einkum stund á verkalýðslöggjöf. Eftir framhaldsnámið hóf hann störf hjá lög- reglustjóranum í Reykjavík frá 1. september 1933, settur sýslumaður í Gull- bringu- og Kjósarsýslu og bæjarfógeti í Hafnarfirði var hann frá 17. nóvember 1933 til 15. mars 1935, en síðan aftur fulltrúi lögreglustjórans og lögmanns- ins í Reykjavfk, fulltrúi hjá sakadómaranum í Reykjavík 1. janúar 1940 og settur hæstaréttarritari frá 1. janúar 1946 til 30. júní sama ár. Ragnar hvarf úr opinberri þjónustu eftir þetta og setti á stofn málflutnings- skrifstofu, sem hann rak til ársloka 1978. Áhugamál Ragnars voru bækur og félagsmál. Hann byrjaði ungur að safna bókum og eignaðist mjög vandað safn, sem hefur að geyma marga dýrgripi. Á námsárum sínum erlendis, svo og á ferðum síðar, leitaði hann gjarnan bóka. Hann var kosinn í félagsráð Máls og menningar 1940 og í stjórn útgfáu- félagsins Landnámu sama ár. Árið 1944 stofnaði hann bókaútgáfuna Hlað- búð og rak í um tvo áratugi. Þar voru gefnar út merkar bækur, sem við höfum öll notið. Þar á ég við kennslubækur, fræðirit o. fl. Ragnar tók mikinn þátt í félagsmálum Lögmannafélagsins. Hann var einn af hvatamönnum að stofnun Lífeyrissjóðs lögmanna. Hann varð fyrsti for- maður sjóðsins, sem stofnaður var 18. mars 1960, og gegndi því starfi í nokkur ár. Ragnar kvæntist 30. maí 1942 Sigríði Símonardóttur. Þau skildu. Börn þeirra eru Ragnhildur, sem nú býr í Kanada, og Símon, gullsmiður, sem býr í Kópavogi. Símon hefur nú tekið við rekstri fyrirtækis afa sfns, en um margra ára skeið hafði Ragnar hönd í bagga um rekstur þess. Ragnar átti við alvarleg veikindi að strfða í lok sjöunda áratugsins. Kynni okkar hófust ekki fyrr en í ársbyrjun 1971, en þá hafði hann gert mér boð um að tala við sig. Um það leyti hafði mjög dregið úr umsvifum hans. Hann hætti lögmannsstörfum sem fyrr segir 1978. Ég veit ekki um neinn lögmann, sem hefur fengið betra umtal og vitnis- burð frá kollegum sínum en hann. Gústaf Þór Tryggvason 130
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.