Tímarit lögfræðinga - 01.11.1983, Síða 13
ÞORVARÐUR K. ÞORSTEINSSON
Þorvarour Kjerúlf Þorsteinsson, sýslumaður
og bæjarfógeti, andaðist 31. ágúst 1983. Hann
var fæddur 21. nóvember 1917 á höfuðbólinu
Egilsstöðum á Völlum I Suður-Múlasýslu, son-
ur Þorsteins Jónssonar kaupfélagsstjóra og
konu hans Sigríðar Þorvarðardóttur Kjerúlf,
læknis og alþingismanns, er þá áttu heimili á
Egilsstöðum, en fluttu næsta ár til Reyðarfjarð-
ar. Þorsteinn faðir Þorvarðar Kjerúlfs var kaup-
félagsstjóri á Reyðarfirði I rúmlega fjóra ára-
tugi við mikinn orðstír.
Á Reyðarfirði ólst Þorvarður upp. Hann var
elstur af fjórum börnum þeirra hjóna, hin eru
Margrét gift Birni Ingvarssyni yfirborgardómara
í Reykjavík, Jón yfirlæknir á lyfjadeild Land-
spítalans og Þorgeir lögreglustjóri á Keflavlk-
urflugvelli; einnig átti Þorvarður fósturbróður, Ólaf Bjarnason deildarstjóra
við tollstjóraembættið í Reykjavík.
Að barnaskólanámi loknu hélt Þorvarður I Menntaskólann á Akureyri og
lauk þaðan stúdentsprófi 1938. Þaðan lá leiðin í lagadeild Háskóla islands
og lauk hann lagaprófi vorið 1944. Sama ár hóf hann störf í atvinnumála-
ráðuneytinu sem fulltrúi en síðar deildarstjóri í landbúnaoarráðuneytinu allt
til ársins 1973, að hann var skipaður sýslumaður I ísafjarðarsýslum og bæjar-
fógeti á ísafirði. Þar vann hann I tíu ár, en lét af störfum vegna heilsubrests
1. maí 1983. Hafði hann þá unnið í þágu ríkisins í tæpa fjóra áratugi.
Þorvarður Kjerúlf kvæntist 1944 Önnu Einarsdóttur verkstjóra á Akranesi,
en þau slitu samvistum.
Þau áttu saman fimm börn: Einar umdæmisverkfræðing á Austurlandi, Sig-
ríði ritara í Reykjavík, Margréti hjúkrunarfræðing, Guðbjörgu dýralækni og
Þorstein búfræðikandídat.
Seinni kona Þorvarðar er Magdalena Thoroddsen, dóttir Ólafs I. Thorodd-
sen skipstjóra í Vatnsdal í Rauðasandshreppi. Þau eiga saman tvær dætur,
Ól ínu og Halldóru, sem báðar eru við nám í Háskóla (slands. Utan hjóna-
bands átti Þorvarður tvær dætur, Dýrfinnu Sigríði og Dagbjörtu Þyri.
Leiðir okkar Þorvarðar Kjerúlf lágu saman 1932 ( Menntaskólanum á Akur-
eyri. Bjuggum við báðir í gömlu heimavistinni með mörgum glöðum og góð-
um félögum. Varð okkur brátt vel til vina, sem hélst alla tíð.
Ég minnist sérstaklega áranna í lagadeild Háskólans. Við bjuggum báðir
á Garði og vorum mikið saman. Þorvarður var ágætur félagi. Hann var gam-
ansamur og næmur á það sem broslegt var. Hann var prýðilega máli farinn
og þéttur fyrir ef á hann var deilt. Hann var á þessum árum í stúdentaráði,
fulltrúi frjálslyndra. Að eðlisfari var Þorvarður hlédrægur, en í hópi góðra
vina var hann hrókur alls fagnaðar.
Þorvarður Kjerúlf hafði mikið dálæti á sögu og var þar vel lesinn. Sér-
staklega voru íslendingasögurnar honum tiltækar og hafði hann á þeim sínar
ákveðnu skoðanir, einnig var hann mjög vel ættfróður.
131