Tímarit lögfræðinga - 01.11.1983, Side 16
skipa hinni nýju grein og raska þannig ekki greinatölu. Er slíkt æski-
legt vegna samhengisins í tilvitnunum. Stundum er lögmælt ný máls-
grein að stofni til, en ekki grein í heild sinni, sbr. 1. gr. 2. mgr., 5.
gr. 2. mgr., 6. gr. 4.—7. tl., og 165. gr. 2. mgr. (um svonefnt flugrán).
Breytingar þessar eru bæði margar og ýmsar þeirra veigamiklar.
Hegningarlaganefnd hefir samið frumvörp til flestra breytingalag-
anna, en nokkur frv. hafa þó starfsmenn Dómsmálaráðuneytis gagn-
gert samið. Sérstöku máli gegnir um afnám 179. gr. með dýraverndar-
lögum 21/1957 og afnám 265. gr. með erfðalögum 8/1962.
Hegningarlaganefnd var fyrst komið á fót árið 1952 (28. júlí þ. á.)
og skipaði dr. Bjarni Benediktsson dómsmálaráðherra hana. I henni
áttu sæti dr. Þórður Eyjólfsson hæstaréttardómari, formaður, Jónatan
Hallvarðsson hæstaréttardómari og Ármann Snævarr prófessor. Sú
nefnd undirbjó m a. frv. til laga 22/1955 um breytingar á VI. kafla
alm. hgl. og til laga 20/1956 varðandi 259. gr., svo og frv. til laga 81/
1961 um breytingar á reglunum um réttindasviptingu, þ. á m. 68. gr.
og 68. gr. a alm. hgl. Hegningarlaganefnd var endurskipuð 25. júní
1971 og hafði þá ekki starfað um nokkurt árabil. Skipaði Auður
Auðuns dómsmálaráðherra í nefndina Ármann Snævarr, formann,
Jónatan Þórmundsson prófessor, Valdimar Stefánsson saksóknara rík-
isins og Þórð Björnsson yfirsakadómara. Undirbjó sú nefnd m. a. frv.
til laga 41 og 96 frá 1973. Eftir lát Valdimars Stefánssonar árið 1973
hafa hinir þrír nefndarmennirnir, sem greindir voru, skipað nefndina.
Ritari nefndarinnar hefir verið Jón Thors deildarstjóri frá 25. júní
1971. Sú breyting hefur nú orðið á skipun nefndarinnar, að Guðmund-
Dr. Ármann Snævarr varð lögfræðingur 1944.
Hann var prófessor við lagadeild Háskóla ís-
lands 1948-1972 og annaðist kennsluskyldu
prófessorsembættisins 1972-3. Hann var settur
hæstaréttardómari 1. október til 31. desember
1970, en var skipaður hæstaréttardómari frá 1.
maí 1972. Hann var rektor Háskólans 1960-1969.
Dr. Ármann hefur lengi verið formaður sifja-
laganefndar og hegningarlaganefndar og full-
trúi íslands í norrænu hegningarlaganefndinni.
Hann var fyrsti formaður Lögfræðingafélags ís-
lands (1958-1964) og er heiðursfélagi þess. Dr.
Ármann hefur ritað mikið um sifja- og eríðarétt,
refsirétt og réttarsögu o. fl. Hann er heiðurs-
doktor í lögum frá háskólanum í Uppsölum og
Helsingfors og frá Ohio Northern-háskóla.
134