Tímarit lögfræðinga - 01.12.1987, Page 62
Skyldugreinar samkvæmt þessari uppástungu myndu nema sem næst helm-
ingi tilskilins einingafjölda og yr5u eftirfarandi:
Almenn lögfræSi með ágripi af réttarsögu, réttarheimspeki og réttarfélags-
fræði (sennilega heilsársgrein), eignarréttur I með ágripi af veðrétti, einkamála-
réttarfar I, félagaréttur I með ágripi af fyrirtækjarétti, félagsmálaréttur I, fógeta-
gerðir I með ágripi af skipta-, gjaldþrota- og uppboðsrétti, refsiréttur I með
ágripi af opinberu réttarfari, samningaréttur I með ágripi af kröfurétti, ágrip
af sifja-, erfða-, barna- og persónurétti, skaðabótaréttur I, skattaréttur I,
stjórnarfarsréttur I, stjórnskipunaréttur I og þjóðaréttur I með ágripi af alþjóð-
legum einkamála- og viðskiptarétti.
Yfirferð í einstökum skyldugreinum mætti að sjálfsögðu stjórna með fjölda
tíma á viku, og engin ástæða til að þær vegi allar jafnt, þó að heildareininga-
fjöldi miðaðist við 60 einingar, eða sem næst helming námsins, eins og áður
segir. Rómversku tölurnar þjóna þeim tilgangi einum að skilja þessar skyldu-
greinar frá samnefndum kjörgreinum, þar sem miklu nánar yrði farið yfir við-
komandi efni og þá í sem ríkustum mæli með raunhæfum dæmum og verk-
efnum.
Hinn helmingur námsins væri fólginn f kjörgreinum á fimm sérsviðum, sem
nemendur gætu valið eftir eigin óskum skv. skiptingarreglunni 30+15+15, sem
áður er nefnd. Sérsviðin væru þessi:
1) Stjórnsýslusvið: Félagsmálaréttur II, opinber stjórnsýsla, skattaréttur II,
stjórnarfarsréttur II og stjórnskipunarréttur II.
Mælt er með þessum greinum af öðrum sviðum lagadeildar: Alþjóðastofn-
unum, bankarétti, bókfærslu, endurskoðun, innflytjenda- og flóttamannarétti,
mannréttindum, sjórétti og vinnurétti.
Mælt er með þessum greinum úr öðrum deildum: íslenska stjórnkerfinu,
kirkjurétti, stjórnun o.s.frv.
2) Viðskiptasvið: Alþjóðlegur viðskiptaréttur, bankaréttur, þ.m.t. víxlar og
tékkar, bókfærsla, eignarréttur II, þ.m.t. þinglýsingar, endurskoðun, félagarétt-
ur II, fyrirtækjaréttur, hugverkaréttur, kröfuréttur, samninga- og skjalagerð,
samningaréttur II, sjóréttur, skaðabótaréttur II, vátryggingaréttur og veðréttur.
Mælt er með þessum greinum af öðrum sviðum lagadeildar: Bankarétti og
skattarétti II.
Mælt er með þessum greinum úr öðrum deildum: Markaðsbandalögum,
stjórnun, útflutningsatvinnugreinum, viðskiptaensku og eflaust fleiri greinum
úr viðskiptadeild, svo sem viðbótarbókfærslu og endurskoðun.
3) Málflutningssvið: Alþjóðlegur einkamálaréttur, einkamálaréttarfar II,
fógetagerðir II, opinbert réttarfar, skipta- og gjaldþrotaréttur og uppboðs-
réttur, þ.m.t. nauðungaruppboð.
Mælt er með þessum greinum af öðrum sviðum lagadeildar: Bókfærslu,
eignarrétti II, endurskoðun, félagarétti II, refsirétti II, samninga- og skjalagerð,
samningarétti II, skaðabótarétti II og veðrétti.
Mælt er með þessum greinum úr öðrum deildum: Afbrotafræði og sálfræði
(t.d. framburður vitna).
4) Einstaklingsverndarsvið: Barnaréttur, erfðaréttur, innflytjenda- og flótta-
mannaréttur, persónuréttur, refsiréttur II, sifjaréttur og vinnuréttur.
284