Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1990, Side 36

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1990, Side 36
Hæstaréttar má sjá, að sé í verulegum atriðum vikið frá einkamálalögum við gerðarmeðferð getur svo farið að málsmeðferðin verði ómerkt.1 Pá hafa úrlausnir gerðardóma ekki verið aðfararhæfar og hefur það eflaust eitthvað dregið úr því að úr réttarágreiningi hafi verið leyst með gerð. í greinargerð með gerðardómslögunum eru taldir upp til glöggvunar helstu þjóðréttarsamningar um gerðardóma og gerð stutt grein fyrir þeim svo og helstu gerðardómsstofnunum. Vísast til greinargerðarinnar til frekari upplýsinga um þau atriði. Þó er ástæða til að minna hér á það hlutverk sem Sameinuðu þjóðirnar hafa gegnt við að samræma lagaákvæði ýmissa landa um gerðardóma. Ber þar fyrst að nefna New York samninginn frá árinu 1958 sem yfir 70 ríki hafa staðfest. (ísland er ekki þar á meðal). Árið 1966 var stofnuð á vegum Sameinuðu þjóðanna nefnd, UNCITRAL [United Nations Commission on International Trade Law], til að vinna að samræmingu á sviði löggjafar um samningsbundna gerðardóma enda þótti mismunandi löggjöf skapa óvissu í alþjóðlegum verslun- arviðskiptum. Umfangsmiklu starfi nefndarinnar lauk þegar samþykktar voru tillögur hennar um svonefnd rammalög (Almennt nefnd UNCITRAL Model- law) í júní 1985. Nefndin hafði þá sent frá sér fjölda uppkasta og haft samráð við allar helstu gerðarstofnanir. Til dæmis hélt Gerðardómur alþjóðlega verslunar- ráðsins (ICCA) fund í Lausanne árið 1984 með 500 þátttakendum þar sem frumvarp nefndarinnar var reifað. Rammalögin hafa verið notuð sem fyrirmynd við lagasetningu í ýmsum löndum og jafnvel verið byggt á þeim að verulegu leyti t. d. í löggjöf Kanada og Hollands um samningsbundna gerðardóma. Þau eru hins vegar fyrst og fremst ætluð til nota í alþjóða verslunarviðskiptum eins og áður sagði. 3. EFNISSKIPAN Lögum nr. 53/1989 um samningsbundna gerðardóma má skipta í eftirtalda efnisþætti: í fyrsta lagi eru ákvæði um gerðarsamninginn. í öðru lagi eru ákvæði er fjalla um skipun og hæfi gerðarmanna. í þriðja lagi er fjallað um málsmeðferð fyrir gerðardómi og í fjórða lagi er fjallað um hlutverk dómstóla við gerðarmeðferð. 3. 1. Gerðarsamningurinn Gerðarsamningurinn er aðalatriðið við sönnun þess hverjir séu aðilar gerðar- máls, hvort ætlun þeirra hafi verið sú að leggja réttarágreining sinn í gerð, úr hvaða réttarágreiningi skuli leysa og með hvaða hætti. í 1. mgr. 3. gr. gerðardómslaganna er gerðkrafaum að gerðarsamningurskuli vera skriflegur. Er það í samræmi við norsk, finnsk og þýsk gerðardómslög svo 1 Hrd. 1966 561. Miðnesdómurinn. Sjá sjónarmið aðila í Hrd. 1974 70. 30

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.