Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1990, Blaðsíða 22

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1990, Blaðsíða 22
10. AFSTAÐA ÍSLENSKRA STJÓRNVALDA Haustið 1951 leitaði ríkisstjórn íslands eftir samþykki Alþingis við aðild íslands að Mannréttindasáttmála Evrópu. Framsögumaður var þáverandi dómsmálaráðherra, Bjarni Benediktsson, og í ræðu sinni sagði hann m.a.:32 Um þau réttindi, sem hér eru talin, er það í stuttu máli að segja, að í öllu því, sem nokkru máli skiptir, þá eru þau réttindi nú þegar beinlínis veitt borgurunum berum orðum í íslenskri löggjöf, að nokkru leyti í sjálfri stj.skr., eða þá að það eru slík grundvallarréttindi, að þau eru talin felast í meginreglum íslenzkra laga, jafnvel þó að ekki sé berum orðum fram tekið. Þess vegna má segja, að 1. kafli þessa samnings sé hér á landi engin nýjung, því að þar eru talin upp þau réttindi, sem borgararnir þegar hafa notið og talin eru sjálfsagður þáttur í verndun íslenzkra borgara gegn ofurvaldi ríkisvaldsins eða ásælni af annarra hálfu. Með þessari afstöðu var íslenska ríkisstjórnin að tilkynna, að samanburður á ákvæðum MSE og íslenskra laga leiddi til þeirrar niðurstöðu, að ekki þyrfti að gera neinar breytingar á íslenskum lögum. Hvorki þyrfti að afnema gildandi sett lög, breyta ákvæðum í íslenskum lögum eða setja ný lög. Taldi ríkisstjórnin öll þau réttindi, sem veitt væri vernd í MSE, njóta verndar í settum íslenskum lögum, stjórnarskrá eða í óskráðum meginreglum íslenskra laga. Því væri engin nýjung hér á landi í efnisákvæðum sáttmálans. Þar sem afstaða íslensku ríkisstjórnarinnar virðist hafa verið svo afdráttar- laus, sem framanrituð orð bera með sér, þá hefur augljóslega ekki verið rædd til neinnar hlítar hugsanleg þörf á að lögfesta sáttmálann í heild eða einstaka hluta hans. Á sambærileg sjónarmið reyndi þegar ísland gerðist aðili að ASBS 1978. í skýrslu ríkisstjórnarinnar hinn 31. mars 1981 til Mannréttindanefndar Samein- uðu þjóðanna segir m.a.:33 “C. Applicability of the Covenant under Icelandic Law. 17. It is a principle of Icelandic Iaw that the rules of international law do not have the force of law in Iceland. This applies equally to treaties to which Iceland is a party. Their provisions cannot be applied vis-á-vis Icelandic citizens unless they have been incorporated in Icelandic law. Such treaties are of course binding upon Iceland vis-á-vis other countries. Moreover, Icelandic courts as a rule seek to interpret Icelandic law in accordance with such treaties. 18. When the question of ratification of the Covenant was studied it was considered that its provisions were completely in accordance with existing Icelandic Iaw, with the 32Samkvæmt tilvitnun í dómi Hæstaréttar 9. janúar 1990. 33CCPR/C/10/Add.4. Höfundi er ekki kunnugt um tilvist íslenskrar þýðingar á skýrslu þessari. 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.