Tímarit lögfræðinga - 01.06.1990, Blaðsíða 65
Markús Sigurbjörnsson var settur prófessor við lagadeild frá 1. september
1989 til 1. september 1990.
Davíð Þór Björgvinsson var settur dósent við lagadeild frá 1. janúar 1990 til 1.
janúar 1991.
Ragnheiður Bragadóttir aðjúnkt var ráðin lektor við lagadeild frá 1. ágúst
1989.
Magnús K. Hannesson var settur lektor við lagadeild frá 1. maí 1989 til þriggja
ára.
4. SKRIFSTOFA LAGADEILDAR
Deildarfulltrúastöðu Guðríðar H. Magnúsdóttur var breytt í stöðu skrifstofu-
stjóra frá 1. júlí 1989.
5. DEILDARFORSETI
Sigurður Líndal prófessor tók við starfi deildarforseta 15. september 1988 og
gegnir því í tvö ár. Arnljótur Björnsson er varadeildarforseti.
6. ORATOR
Á aðalfundi Orators, sem haldinn var á haustmisseri 1989, var Gunnar
Sturluson kosinn formaður félagsins og Helga Jónsdóttir varaformaður. Ólöf
Nordal var kosin ritstjóri Úlfljóts.
Sigurður Líndal
SKÝRSLA UM LAGASTOFNUN HÁSKÓLA ÍSLANDS 29. FEBRÚAR
1989-28. FEBRÚAR 1990.
1. STARFSLIÐ
Þessir kennarar í fullu starfi störfuðu við Lagastofnun 1989 - 1990: Arnljótur
Björnsson, Björn Þ. Guðmundsson, Davíð Þór Björgvinsson, Gaukur Jörunds-
son (í leyfi), Gunnar G. Schram, Jónatan Þórmundsson, Magnús Kjartan
Hannesson (frá 1. maí 1989), Markús Sigurbjörnsson, Páll Sigurðsson, Ragn-
heiður Bragadóttir (í fullu starfi frá 1. ágúst 1989), Sigurður Líndal, Stefán Már
Stefánsson og Þorgeir Örlygsson.
2. STJÓRN
Á fundi lagadeildar 24. febrúar 1989 voru þessir menn kosnir í stjórn
stofnunarinnar til næstu tveggja ára: Arnljótur Björnsson, Björn Þ. Guðmunds-
son, Jónatan Þórmundsson og Sigurður Líndal. Stjórn Orators hefur hefur
59