Búnaðarrit - 01.01.1890, Síða 12
8
henni ofan til, en smáminnka eptir ]iví, sem neðar dreg-
ur, unz þau þrjóta þar, sem jurtaræturnar ná eigi til
og hafa eigi náð til, en þar sem þær þrjóta að mestu,
þar eru og takmörk hennar að neðan.
Matjörðin er samsett af smærri og stærri hlutum
eða smámold (Finjorð) og grófmold (Skelet1), og máað-
skilja hana í þessa tvo aðalhluta hennar með sáldi, er
hefir möska, sem eru a/8 millimetir2 á kant. Pað, sem
fellur í gegn um sáldið, er smámold, en hitt, sem eptir
verður, er grófmold.
Grófmoldin er misjafnlega gróf. Til þess að gjöra
sjer giöggari grein fyrir ástandi hennar, einkum hvað
viðvíkur loptmolnuninni, þá má aðgreina hana með gróf-
gjörðari sáldum. Vanalega er hún þá aðgreind í möl,
grófsand og smásand. Möl heitir það, sem er 2—10
millimetrar að þvermáli; grófsandur er 1—2 millimetr-
ar, en smásandur er minna en 1 millimetir í þvermál.
Sje mikið af grófmoldinni, möl og grófsandi, þá sýnir
það, að loptmolnunin á mikið eptir að vinna áður efnin
geti orðið jurtunum að næringu, en því meira sem er
af smásandi, þess lengra er loptmolnunin komin, ogþví
skemmra er til þess, að jurtunum verði eitthvað af efn-
unum að notum til næringar.
Grófmoldin hefir ýmsa mikilsvarðandi þýðingu; hún
gjörir matjörðina holóttari, svo að vatn, lopt o. s. frv.,
komast betur að með verkanir sínar, en óþarft (o: of
mikið) vatn getur sígið burt; hún styður að rótmynd-
un jurtanna, af því að rótangarnir festa sig á hinum
]) Grófmold er auðvituð eigi moldefni eingöngu, þvert á móti
er opt mjög lítið af þeim i henni.
2) 1 millimetir er Viooo úr metir = íi.1U82 fet, 2.., millimetrar eru
því sama sem 1 lína,