Búnaðarrit - 01.01.1890, Síða 81
77
ars með því að stuðla til þessarar samkeppni. Eins og
hreppunum er lijer ætlað að fá sveitarbændur til að
keppa liver við annan, eins ættu sýslunefndirnar að fá
hreppana eða hreppafjelögin til að reyna sig. Ef sýslu-
nefndin fyrst dregur saman í eitt skýrslur hreppanna
fyrir nokkur, t. d. 10 undanfarin ár, og tekur eptir
þeim meðaltal af því, sem fengist heflir að jafnaði á ári
í hverjum hrepp fyrir sig af töðu, útheyi og öðrum jarð-
arávöxtum, stærð á ræktuðu landi og sömuleiðis aftölu
lifandi penings og íieiru, er skýrslur eru til um, þá
verður að álíta, að þar með sje fengin hagskýrsla um
meðalbúskap hvers hrepps á þessum tíma. Skýrslu
þessa getur þá sýslunefndin fyrst um sinn haft fyrir
mælikvarða til að bera saman við hana ársskýrslur
hreppanna, og eptir því getur hún glögglega sjeð, livern-
ig hver hreppur sýslufjelagsins dugar í hlutfalli við hina
aðra, til að bæta búnað sinn í liverri helztu búnaðar-
grein. Nefndin ætti svo á hverju ári að rita í gjörða-
bók sína nægilega sundurliðað yfirlit yfir þetta efni og
senda hreppsnefndunum eptirrit af því, þeim tii hug-
vekju eða hugleiðingar. Slíkar skýrslur sýslunefndanna
væri einnig mjög þarflegt að prenta í Búnaðarriti lauds-
ius. Eins og áður er á vikið, ættu sýslunefndirnar að
láta sjer mjög annt um, að einstakir framúrskarandi
búmenn í hreppunum fengi opinbera viðurkenning eða
heiðursvott fyrir dugnað sinn, eptir því sem föng væru
til, og eins að hver hreppur, sem skaraði mikið fram
úr í þessu tilliti, fengi verðskuldaðan heiður fyrir það.
Eptir nokkuð mörg ár, t. d. einn áratug, ætti nefndin
aptur að búa til nýja meðaltals-búnaðarskýrslu um bún-
aðarhagi hvers lirepps á þessu tímabili, og hafa hana
svo næsta tímabil fyrir mælikvarða til að miða við.
Það er vonandi, að skýrslur þessar gætu með framtíð-