Búnaðarrit - 01.01.1890, Síða 132
128
„Þetta verður ekki tekið upp úr þúíúnum", segja
sumir þegar þeir sjá nokkra aura, en lijer eru eigi
að eins nokkrir aurar, heldur mikið fje tekið upp úr
ágóði rúmar 160 kr. jafnvel þó að garðávextirnir væru mjög lágt
metnir; t. d. 8340 pd., sem fengust af rófum og næpum, var metið
237 kr. og allt kál úr görðunum að eins 17 kr.
Hjer skal skýrt frú ávöxtum þeiin, er ræktaðir voru, og þroska
þeirra.
Spidskaal varð mjög stórt. Qrœnlcál náði einnig góðum vexti,
þótt það yrði eigi eins þroskamikið; meðal þess var ein planta af
hvítkáli, er höfuðið varð ú viðlika og uuglings lincfi.
Rwnde franske Majroer. Kálið varð mjög stórt, en undir-
vöxtur eigi að sama skapi eða heldur lítill.
Kjörvel náði ágætum vexti; varð fulla alin á liæð, þó náði
fræ eigi þroska.
Spinat varð ura alin á hæð.
Salat náði góðum þroska.
Petersille óx lítið; vænstu plönturnar urðu 2—3 þuml. á hæð.
Randers Carot óx mjög lítið. Yænstu rófurnar urðu viðlika
og mannsfingur.
Qwle Majroer náðu góðum vexti, 2—3 pd., en voru eigi vel
lieillegar og iijótar til að springa.
Tidlig flad Majroer uxu mjög sneinma, svo að fyrri hluta ágúst
mátti nota þær til matar. Um haustið náðu þær vænstu 2—3 pd.
þunga. Þær voru flestar heillegar og ósjúkar, og virtist gott að
hafa þær til ræktunar.
Finnskar röfur uxu fljótt og vel; náðu þær 3—4 pd. þunga
og voru liinar ósjúkustu af öllum tegundum, er sáð var í garðana,
því að varla sást hrúður eða sprunga á nokkurri, og hjer uorðan
lands munu þær vera einar beztu af hinum grófgerðari tegundum.
Turneps. Báðar tegundir þess voru einnig hraustar eða ósjúk-
ar. Vanalegt Turneps náði mestum vexti í garðinum. 2 stærstu
rófurnar ógu 5% pd. hvor um sig, og ummál annarar þeirrar var
21 þuml. Norskt Turncps náði ekki eins miklum þroska, en róf-
urnar eru þjettari og betri. — Þær eru rauðleitar að ofan. — Hinar
stærstu 2—3 pd.
Bortfelskar rófur reyndust ekki sjerlega vel. Hinar þyngstu