Búnaðarrit - 01.01.1890, Síða 159
155
Þegar búið er að ná ullinni af gærunni, er skinnið
tekið í sundur, lagt í vatn og þvegið sem bezt. í vatn-
iuu verður skinnið að liggja 8—10 daga og skal nokkr-
um sinnum skipta um vatnið, einkum seinni liluta
timans. Þá skal og skafa skinnin vel, einkum liold-
rosumegin, og er til þess hafður íbjúgur járnhnífur,
sljóv-eggjaður með trjesköptum
á báðum endum (sjá 1. mynd).
Skinnin eru lögð á kúpta fjöl (sjá
2. mynd), sem er látin standa
skáhalt á trjekrossi með járnbroddum á efri enda (sjá
3. mynd) neðan frá jörðu upp undir bringspeli þess, er
skefur skinnið, því að þannig er ljettast að skafa þau.
Það verður að þvo og skafa skinnin, unz ekkert
hár sjest eptir á hárramminum, nje feiti eða kjöttægja
innan í holdrosunni, og kalkinu þarf að ná sem allra
best úr þeim. Betra er að liræra út í vatnið, sem
skinnin liggja seinast í, dálítið af úrsikti (klid), og leys-
ist þá kalkið betur úr.
Þegar nú búið er að ná sem allra bezt kalkinu úr
skinninu og hreinsa það ágætlega er það látið í álúns-
löginn. Álúnslögurinn samanstendur af álúni og matar-
salti, sínum helmingi af livoru, leystu upp í volgu vatni.
Skinnin eru sett ofan í löginn hjer um bil nýmjólkur-
volgan og verður að koma þeim skinnum, er eiga að
fara í sama ílát, sem jafnast ofan í, en þó einu í senn,
og líði sem skemmst á milli, því að annars taka þau mis-
jafnt í sig úr leginum. Þegar komin eru í ílátið öll
þau skinn, sem þar eiga að vera, skal velta þeim við
og þvætta þau eða þæfa undir hönduin eða fótum; líka
má og gera það með trjehnalli. Þetta skal gera nokk-
urn tíma, til þess að þau dragi sem jafnast til sín efn-
in úr leginum. Þegar skilið er við skinnin, verður að