Búnaðarrit - 01.01.1907, Page 353
17
hafði áætlað, standi óbreytt. Nefndin felst á það að
nauðsynlegt sé að taka til greina styrkbeiðni frá fé-
iaginu „Nirði“ á Stokkseyri til sjógarðshleðslu, þar
sem þetta fyrirtæki er nokkurskonar framhald af
samskonar verki, sem áður hefir verið styrkt og
verður styrkt eitthvað framvegis af fólaginu. Nefndin
telur einnig sjálfsagt að þessi liður gangi að mestu
ieyti til Suður og Vesturlands, en fjórðungafélögunum
norðan og austanlands sé ætlað að styrkja slík fyrir*
tæki innan síns verksviðs, nema ef um eitthvað veru-
lega stórfelt fyrirtæki er að ræða.
2. Til gróðrarstöðvar í Reykjavík leggur nefndin til að
varið sé 3000 kr. fyrra árið og 2500 kr. síðara árið.
Þessi 500 kr. hækkun fyrra árið, framyfir áætlun fé-
lagsstjórnar, byggist á því, að nefndin telur nauðsyn-
legt, að komið verði á fót, að minsta kosti 2 auka-
tilraunastöðvum hér syðra, annari austanfjalis en hinni
í Borgarfirði, með tilstyrk viðkomandi héraða. Á
þessum auka-tilraunastöðvum ætti sérstaklega að hag-
nýta reynslu þá sem fengin er um sáðsléttun á gróðr-
arstöðinni í Reykjavík.
Nefndin vili einnig leggja áherzlu á, íþessu sam-
bandi, að sá af ráðunautum félagsins sem hefir
gróðraitilraunirnar á liendi, fái tækifæri til ferðalaga
hér sunnanlands, til leiðbeiningar í nýyrkingu iands
og grasfræsáningu.
3. Ræktunarféiag Norðuriands ieggur nefndin til að fái
8500 kr. hvort árið, getur ekki fallist á að rétt sé
að hafa þá upphæð minni þegar litið er til þess, að
félagið er ungt, hefir afarmikið starf með höndum,
og hefir þegar orðið mikið ágengt.
4. Búnaðarsamband Austurlands leggur nefndin til að
fái 3500 kr\ fyrra árið, auk 2000 kr. húsbygginging-
arstyrks það ár, og 4000 kr. síðara árið.
5. Tii búnaðarsambands vestanlands leggur nefndin til