Búnaðarrit - 01.06.1919, Blaðsíða 18
128
EÚXAÐARRIT
Loks hefir þess verið farið á leit við forsætisráðherra,
að hann hlutaðist til um, að uppmælingar landsins, er
herstjórnarráðið danska hefir haft með höndum, gæti
haldið áfram, því að það er mjög mikilsvert fyrir aukna
þekking á landinu og möguleikunum til aukinna búnaðar-
framfara.
Til áveitutilrauna þeirra, er fjelagið hefir stofnað til
eftir forsögn Sig. Sig. ráðunauts, voru veittir umsamdir
styrkir. Jafnframt hefir verið samið við Jakob Líndal,
bónda á Lækjamóti, um áveitutilraunir í sambandi við
áveitu, er hann hefir gert á jörð sinni eftir tilhögun,
er hann hefir lagt til.
Til samgiröinga, annara en girðinga fyrir kynbóta-
gripi, voru greiddar 226 kr. til Gfirðingafjelags Kinnunga,
og var það gamalt fyrirheit, en annars er fjelagið fyrir
þrem árum hætt að styrkja aðrar girðingar en nauta-
og stóðhesta-girðingar.
Um gróðrarstöðina í Reykjavík og sýnisstöðvarnar vil
jeg geta þess, að þar hefir verið reynt að halda í horf-
inu, en tilraunir í gróðrarstöðinni hafa þó verið með
minna móti, sakir örðugleika á að útvega fræ og til-
búnar áburðartegundir.
JJm leiðbeiningaferðir Sig. Sig. ráðunauts til mælinga
fyrir áveitu o. fl. vísast til ársskýrslu hans í Búnaðar-
ritinu.
Búfjárrækt. Fjelagið hefir styrkt og haldið uppi 35
nautgripafjelögum, styrkt 4 hrossaræktarfjelög, aðallega
til stóðhestakaupa, og ennfremur sauðfjárkynbótabúin. —
Hrossasýningar hafa verið styrktar í Borgarfirði og Snæ-
fellsness og Dala sýslum, og ennfremur í Árnes og Rangár-
valla sýslum. — Hrútasýningar voru styrktar síðastliðið
haust í Húnavatnssýslu, Borgarfirði og Kjósar- og Gull-
bringusýslu. Eru skýrslur um sýningarnar komnar út í
Búnaðarritinu. — Þá styrkti fjelagið fóðurtilraunir á