Búnaðarrit - 01.06.1919, Blaðsíða 48
158
BÚNAÐARRIT
Ágúst Helgason bar fram þá breytingartillögu vi&
1. gjaldlið, að laun forseta verði 5000 kr., og að
laun stjórnarnefndarmanna verði hækkuð í 500 kr.
fyrir hvorn þeirra.
Breytingartillögunni vísað til fjárhagsnefndar til
frekari athugunar.
Þá voru allir gjaldliðir áætlunarinnar bornir undir
atkvæði, hvor fyrir sig, og samþyktir í einu hljóði,
að undanskildum II. lið, til búnaðarsambandanna*
var hann samþyktur með 9 atkv. gegn 1.
Tryggvi Þórhallsson beindi þeirri ósk til fjelags-
stjórnarinnar, að reynt verði að fá Einar Helgason
til að gegna skrifstofustörfum áfram, þótt hann segi
lausri stöðu sinni sem ráðunautur fjelagsins, eins og
heyrst hafl að hann hefði í huga.
4. Meiri hluti fjárhagsnefndar bar fram svohljóðandL
tillögu:
„Að búnaðarþingsfulltrúunum verði í þetta sinn
greiddar 10 kr. í dagpeninga, og að það, sem kostn-
aðurinn við búnaðarþingið fer fram úr áætlun, sje
tekið af sjóðsleifum frá fyrra ári".
Samþ. með öllum greiddum atkv.
5. Fjelagsstjórninni falið að ákveða, hvenær aðalfundur
og búnaðarþing skuli haldlð.
6. Forseti bar fram eftirfarandi tiilögu um styrkinn til
búnaðarsambandanna:
„Tillagið til búnaðarsambandanna sje bundið því
skilyrði, og kemur að eins að svo miklu leyti til
útborgunar, að búnaðarfjelagsstjórnin samþykki
fjárnotkunina, og samböndin njóti þess styrka
annarsstaðar frá, sem fjelagsstjórnin gerir kröfu til"►
Samþ. með öllum atkv.