Búnaðarrit - 01.06.1919, Blaðsíða 112
222
BÚNAÐAKKIT
meta heyhestinn, t. d. sumstaöar við sjó, ]>ar sem
fjörubeit er, eða þar sem beit er góð, væri heyhesturinn
meira en 20 kr. virði. Kvað sjer kært að fá sem flestar
bendingar viðvikjandi starfl fjelagsins, það gæti geflð til-
efni til umhugsunar og hvatningar. Þá þakkaði forseti
íundarmönnum fyrir komuna og góðar undirtektir.
Garðyrkjukenslan
í gróðrarstöðinni í Reykjavík stóð yflr 6 vikna tíma
síðastliðið vor, frá byrjun maí til miðs júní.
Þessir natu kenslunnar:
Bergsveinn Skúlason, Skáleyjum, Barðastr.sýslu.
Guðlaug Guðmundsdóttir, Hraungerði, Árnessýslu.
Guðrún Magnúsdóttir, Gilsbakka, Mýrasýslu.
Málfiíður Einarsdóttir, Munaðarnesi, s. s.
Sigrún Bjarnadóttir, Framnesi, Árnessýslu.
Sigriður Guðmundsdóttir, Höfn, ísafjarðarsýslu.
Sigríður Havaldsdóttir, Hrafnkelsstöðum, Árnessýslu.
Sigurður Sigurðsson, Stóra-Fjarðarhorni, Strandas.
Sigurður Þorsteinsson, Reyðarflrði, S.-Múlasýslu.
Steinunn Jóhannsdóttir, Mýratungu, Bai ðastr.sýslu.
Þorsteinn Ásgeirsson, Reykjum, Húnavatnssýslu.
Guðni kennari Ámason var aðal-aðstoðarmaður við
kensluna. Ragnar garðfræðingur Ásgeirsson hélt nokkra
fyrirlestra fyrir nemendum.
Auk garðyrkjunnar í gróðrarstöðinni, unnu nemend-
urnir, einkum piltarnir, nokkuð að garðyrkju hjá ýms-