Búnaðarrit - 01.06.1919, Blaðsíða 63
BÚNAÐA.RRIT
173
eru þó enn utan sambanda. En ekki getum við annað en
ímyndað okkur, að þau muni bráðum átta sig á því, að þeim
er hollast að vera með. Samböndin öll hafa fje nokkurt til
framkvæmda, Við gerum ráð fyrir, að búnaðarfjelögin muni
-öll vilja njóta góðs af því fje og þeim framkvæmdum, og þá
innan skamms ganga 1 samband, þó að ekkert laga-aðhald
komi til.
Tillögurnar gera ráð fyrir, að búnaðarsamböndin sjeu fjög-
ur, fjórðungs-sambönd, og búnaðarþingið hefir oftar en einu
sinni gert tilraun til að koma þéirri skipun á. Þær tilraunir
hafa ekki tekist. Er okkur það sönnun fyrir því, að allmikill
hluti landsins telji sjer annað fyrirkomulag hentugra. Hyggj-
um við því ekki rjett að halda þessu fyrirkomulagi til streitu,
heldur viljum láta sambönd þau, sem nú eru til orðin, vera
sjálfráð í þessu efni sem öðrum. Teljum sambandsskipun þá,
sem á er komin og skapast hefir, eðlilega eftir ástæðum og
staðháttum, eiga á sjer fullan rjett, og að byggja megi á henni
þegar lagabreyting verður gerð um fulltrúakosningar til bún-
aðarþings.
Um þær kosningar teljum við að víbu flestir, að vel hefði
mátt una við fyrirkomulag það, sem stungið er upp á f nefndar-
áliti utn það mál á búnaðarþingi 1917, og þar eru færð rök
fyrir. En tvö búnaðarsamböndin, Austurlands og Suðurlands,
hafa síðan lýst sig því mótfallin, og teljum við þvf ekki fært
að fara þá Ieið að svo komnu. Verði heldur að búa um sinn
við það fyrirkomulag, sem nú er, ef ekki finnast aðrar leiðir-
Leitt er þó að láta það naldast lengi, að norðanlands og
austan kjósi samböndin fulltrúana, en sýslunefndirnar sunnan
lánds og vestan. Til að komast út úr þessum vandkvæðum,
sjáum við ekki annað tiltækilegra en þá tillögu Búnaðarsam-
bands Austurlands. að fulltrúarnir sjeu allir kosnir af búnaðar-
samböndunum. Er ekki hægt annað að segja, en að það fyrir-
komulag sje eðlilegt. Ekki þykjumst vjer, með því að taka
upp þá tillögu, ganga á rjett aðalfundar, því þeirri breytingu
verður ekki á komið án samþykkis hans, og hann hefir fullan
lagarjett til að hafna henni, Við sjáum ekki aðra leið en þessa
til þess, að samböndin öll eigi fulltrúa á búnaðarþingi, og að
atkvæðin, sem hvert þeirra á þar, sjeu í nokkurn veginn rjettu
hiutfalli við stærð sambandanna. Eri það teljum vjer að verði,
ef samþykt verður á búnaðarþingi og aðalfundi þessi tillaga