Búnaðarrit - 01.06.1919, Blaðsíða 113
BÚNAÐARRIT
223
um bæjarbúum, undir umsjón garðyrkjumannanna Karls
Á. Torfasonar og Pals Vigfússonar.
Garðyrkjukenslan í gróðrarstöðinni í Reykjavík hefir
nú staðið yflr í 18 ár, byrjaði vorið 1902; hennar hafa
notið samtals 150 nemendur. Vorin 1912 og 1913 voru
þeir 14, þá flest.ir, en fæstir voru þeir vorið 1907, þá tveir.
Meðaltalan er 8—9.
Þessi kensla hefir verið með sama sniði frá byrjun, og
staðið yfir um 6 vikna tíma. Henni heflr verið ætlað að
byrja 1. maí, en tíðarfar heflr oft ekki leyft að hún
byrjaði fyr en 1 — 2 vikum síðar.
Þenna 6 vikna tíma geta nemendur auðvitað ekki
fengið mikla kenslu í garðyrkju, en þó getur þessi tími
orðið þeim til góðs, er áhuga hafa á starflnu og leggja
rækt við það áfram. Einar Helgason.
Vinimlrjiiaverðlaun 1919.
Umsækjendur voru 28, 9 karlmenn og 19 kvenmenn.
12 umsækjendanna voru úr Árnessýslu, 4 úr Stranda-
sýslu, 3 úr Dalasýslu, 2 úr Þingeyjarsýslu og Skaftafells-
sýslu, 1 úr Borgaifj rrðar-, Snæfellsness-, ísafjarðar-,
Suður-Múla og Vestmannaeyja sýslum.
Þessi 20 vinnuhjú fengu verðlaun:
Árni Palsson, Mosfelli, Árnessýslu.
Ástnður Einarsdóttir, Laugardalshólum, s. s.
Bjarni Þorsteinsson, Vallarnesi, Vestmannaeyjum.
Elín Þorsteinsdóttir, Ási, Árnessýslu.
Guðmundur Jónsson, Skaiði, Haukadal, Dalasýslu.
Guðmundur Sigurðsson, Grund, Borgaríjarðarsýslu.