Hugur - 01.01.1991, Blaðsíða 65
HUGUR
Ártii Finnsson
63
þýðing stendur að líkindum víðs fjarri öllu því sem ætla má að menn
hafi lent í, en það breytir því ekki að ef okkur tekst að gera okkur
hana í hugarlund þá ætti hún að sýna næsta vel hvernig merking
verður aðgengileg í gegnum breytni manna.
Hugsum okkur nú málvísindamann meðal óþekkts ættbálks og
setjum honum það verkefni að þýða tungu ættbálksins á grundvelli
reynsluathugunar einnar saman. Það fyrsta sem honum tekst senni-
lega að þýða eða tengja einhvers konar merkingu, eru setningar um
einfalda hluti sem fyrir augu ber í umhverfinu. Ef hann þannig veitir
því athygli að þegar kanína birtist innan sjónsviðsins segir einn
frumbygginn „Gavagai", gerir hann ráð fyrir að tengja megi setn-
inguna kanínum, eða jafnvel þýða hana með orðinu „kanína". Til-
gátuna getur hann síðan prófað með frekari athugunum. Með tíð og
tíma kemst hann að því hvað beri að líta á sem játun og hvað neitun
í máli frumbyggjanna og þegar þar er komið getur hann prófað að
leita eftir viðbrögðum þeirra við setningum sem hann hefur lært, í
ólíkum aðstæðum; t.a.m. ýmist þegar kanínur eru sjánlegar eða ekki.
Hann getur jafnvel reynt að setja aðstæðurnar upp á þann veg sem
honum hentar best í rannsókninni. Þótt ýmis vandamál komi upp
strax á þessu frumstigi rannsóknarinnar fer þó svo á endanum að
málvísindamaðurinn getur verið næsta viss um að setningunni
„Gavagai" er samsinnt ef kanína er sjáanleg en annars ekki. Tilgátan
sem hann setti fram í upphafi er því sennilega rétt.7
Setningar eins og „Gavagai" nefnir Quine atvikssetningar
(occasion sentences), en það eru setningar sem eru þannig að þeim er
einungis samsinnt að gefnu ákveðnu áreiti og þá þvf aðeins að þetta
áreiti sé til staðar á því augnabliki. Andstætt þessum setningum eru
síðan viðvarandi setningar (standing sentences), sem eru þannig að að
því gefnu að viðkomandi hafi á einhverjum tíma orðið fyrir ákveðnu
áreiti, þá samsinnir hann slíkum setningum óháð aðstæðum hverju
sinni. Areiti þau sem kalla fram samþykki við ákveðnum setningum,
kallar Quine síðan áreitismerkingu (stimulus meaning) þeirra setn-
inga.
Við skulum nú gefa okkur að með stöðugum athugunum og
7 Nákvæma greinargerð fyrir því hvemig þessi rannsókn cða þýðing fer fram, er að
finna í 2. kafla bókar Quines Word and Object. Þar gerir liann einnig nákvæmari
grein fyrir flokkun setninga eftir gerð þeirra og fleiri atriðum sem horft er framhjá