Hugur - 01.01.1991, Blaðsíða 86

Hugur - 01.01.1991, Blaðsíða 86
84 Hlutur ímyndunar í þekkingu HUGUR heimurinn myndi eina reglubundna heild en í heimspeki Kants er sú staðreynd það sem helst þarfnast skýringar. Til að komast að því að eldur og hiti fylgist að verð ég fyrst að skynja eldinn sem einhvem hlut með eiginleika og ég verð að hafa reynslu af því að þessi hlutur hefur ákveðna áfstöðu í tíma og rúmi til þess fyrirbæris sem ég kalla „hita“ og ég hef ástæðu til að ætla að hitinn sé eiginleiki eldsins. En eldurinn er samsettur úr mörgum pörtum, hann getur verið stór eða lítill, náð yfir stutt eða langt tímabil og þessvegna getur skynjun mín á honum verið með ýmsu móti. Hina mismunandi parta sem mæta okkur þegar við skoðum heiminn kallar Kant mergð fyrirbæranna. Þegar við höfum reynslu af eldinum sem einum hlut og köllum hann einu nafni þá er þar komin sameining (Synthesis — eining í mergð fyrirbæranna). Og þetta gerist í allri reynslu. Mergð fyrirbæranna er í sjálfri sér sunduriaus og ef hún væri öll sagan þá gætum við ekki haft reynslu af neinu samhengi, við gætum ekki einu sinni skynjað eitthvað sem mætir okkur á mismun- andi tímum sem einn og sama hlutinn eða að hlutir fylgist að. Kant telur skýringuna á því að við getum yfirleitt orðið vör við eitthvert samhengi í heiminum vera þá að til sé ímyndunarafl sem móti alla reynslu með „forskilvitlegri sameiningu".12 „Forskilvitlegt“ þýðir að þessi sameining í mergð allra fyrirbæra er skilyrði reynslu, þannig að þessa sameiningu er að finna í allri reynslu og ef til er eitthvað sem ekki fellur undir þessa sameiningu þá getur það ekki verið reynsla. Forskilvitleg sameining ímyndunaraflsins Hugsum okkur að við sjáum kúlu velta eftir knattborði. Hún skellur á annarri kúlu og sú veltur af stað. Þetta er dæmi sem Hume notaði til að lýsa því að skilningarvitin gefi ekki neina hugmynd um orsaka- tengsl (Kant myndi segja að orsakatengsl séu ekki gefin í skoðun) og orsök geti þessvegna ekki verið þekkingaratriði. Það eina sem við sjáum er að fyrst veltur önnur kúlan og svo hin, tengsl þar á milli er ekki hægt að sjá þannig að þegar við segjum að hreyfing annarrar kúlunnar sé orsök fyrir hreyfingu hinnar þá erum við strangt til tekið ekki að lýsa þekkingu, heldur erum við samkvæmt Hume að lýsa trú. 12 „Transzendentale Synthcsis der Einbildungskraft“, sjá t.d. Gagnrýni hreinnar skynsemi AlOl og B151.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Hugur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.