Hugur - 01.01.1992, Qupperneq 14

Hugur - 01.01.1992, Qupperneq 14
12 Kristján Kristjánsson HUGUR skýrt því að hún gerir ráð fyrir að ásetningurinn verði að vera liður í orsakakeðjunni sem leiddi til hindrunarihnar í upphafi. Það er af þessum orsökum sem ég hef lagst á sveif með þriðju kenningunni um rétta skilgreiningu neikvæðs frelsis — sem kalla mætti ábyrgðarkenningu. Hún er tiltölulega nýleg og hefur því ekki verið rökstudd til hlítar ennþá. Þar er akur sem gaman er að plægja.10 Ábyrgðarkenningin gengur út á að aðili B skerði frelsi A til að gera x þá og því aðeins að B beri siðlega ábyrgð á þeim hindrunum sem vama A að framkvæma x. Við sjáum hvemig þetta ber í báða bresti ætlunarkenningarinnar. Ábyrgðarkenningin getur auðveldlega gert grein fyrir frelsisskerðingum í krafti vanrækslu eða hugsunarleysis, t.d. fálminu í seinheppna gangnamanninum í dæminu áðan, er losaði um stein í hugsunarleysi. Og sá sem kemur að lokuðum hellinum ber auðvitað ábyrgð á því að losa ekki um steininn, sé honum það í lófa lagið, þótt hann hafi ekki sjálfur velt honum fyrir opið. Þessir kostir ábyrgðarkenningarinnar hljóta að vega mjög þungt því að mörg skelfileg frelsisskerðing stafar alls ekki af ásetningssynd heldur gáleysisvana eða kæruleysi. Tökum t.d. kúgun karla á konum. Oft á tíðum, kannski oftast, stafar hún ekki af þaulskipulögðu áformi heldur einföldu hugsunarleysi. Karlarnir hafa ekki lagt málið niður fyrir sér af skynsemi heldur sætt sig við einhverja alþýðuspeki um að konur hafi ekki sömu andlegu burði og þeir o.s.frv. Eða tökum dæmi af mengun sem stórfyrirtæki veidur með starfsemi sinni. Upphaflegi ásetningurinn er sjaldnast sá að spilla umhverfinu heldur stafar mengunin af vítaverðu kæruleysi sem menn hafa lært að komast upp með. En auðvitað getur verið réttmætt að halda því fram að stóriðju- fyrirtæki skerði frelsi fólks til að anda að sér hreinu lofti, hvort sem einhver aðili innan þess ætlaði sér það eða ekki. Hér sjáum við kosti ábyrgðarkenningarinnar í réttu ljósi. Hún skýrir þetta eins og ekkert sé. 10 Benn, S. I. og Weinstein, W. L. orðuðu ábyrgðarkenninguna fyrstir í grein sinni, „Being Free to Act, and Bcing a Free Man“, Mind, 80 (1971) — en síðan liafa ýmsir reynt að útfæra hana, s.s. Connolly, W. E. í The Terms of Political Discourse, 2. útg. (Oxford: M. Robertson, 1983), Miller, D. í „Constraints on Freedom", Ethics, 94 (1983) og í bók sinni Market, State, and Community (Oxford: Oxford University Press, 1989); og svo Benn í A Theory of Freedom (Cambridge: Cambridge University Press, 1988).
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Hugur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.