Hugur - 01.01.1992, Page 41

Hugur - 01.01.1992, Page 41
HUGUR Er heimspeki framtíðarvon skólakerfisins? 39 Annað atriði er þetta: Amerísk heimspeki hefur alltaf lagt áherslu á gagnsemi, hinar hagnýtu hliðar. Mikilvægi hugtaka fer þá eftir því hvernig við beitum þeim, hvernig þau virka í raunveruleikanum. Þau eru ekki bara mikilvæg í ljósi skilgreininga sinna eða uppruna síns. Taki maður þennan hugsunarhátt alvarlega þá hljótum við að segja að merking og gildi þess sem böm læra í skóla sé að finna fyrir þau í því sem gerist þegar þau beita þessari þekkingu úti í lífinu. Ef böm kvarta undan því að skólinn sé tilgangslaus þá er meginorsökin sú að þeim er ekki kennt að beita því sem þau læra. Það er ekki nóg að hafa upplýsingar og þekkingu, því þekkingin ein og sér getur verið mjög afmörkuð, fræðileg og óhagnýt, en annað gerist þegar við byrjum að rannsaka þessa þekkingu sem við höfum í höndunum og skilja hana. Skilningur er mjög mikilvægur og nauðsyn- legur til að þekkingin sé til einhvers gagns; og síðan, auk efniviðs þekkingarinnar og skilnings, þurfum við hina hagnýtu beitingu þekkingarinnar. Þegar við beitum þekkingunni, breytum við henni þá um leið? Breytist ekki þekkingin sjálf þegar hún hcettir að vera einangruð og gagnslaus? Það mætti færa rök fyrir því að svo sé, en talsmaður hagseminnar myndi svara sem svo að við værum að skerpa skilning okkar á þekkingunni, ekki breyta henni. Maður er ekki að fara á villigötur þegar maður beitir þekkingunni úti í lífinu sem maður innbyrti hjá kennaranum eða prófessornum, heldur er maður að uppgötva hina sönnu merkingu hennar. Þegar við beitum þekkingunni fær hún jafnframt siðferðilegt gildi, ekki bara fræðilegt. Því þá erum við að gera eitthvað við þekkinguna, ekki bara að tileinka okkur hana. Hlutverk rökfrœðinnar Mig langar til að víkja að öðru sem hefur vakið athygli mína. I einni af bókum þínum sem notaðar eru á námskeiðum í barnaheimspeki glíniir aðalpersónan við ýmis klassísk rökfrœðivandamál í daglegu lífi. Um leið eru þessi vandamál af siðferðilegum toga. Getur þú sagt okkur eitthvað um tengsl siðfrœði og rökfrœði? Hefur rökfrœði siðferðilegt gildi?
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.