Hugur - 01.01.1992, Síða 97

Hugur - 01.01.1992, Síða 97
HUGUR Hvernig Descartes erfornlegur 95 að eitthvað hafi verið af henni tekið, þegar skorinn er af mér handleggur eða fótleggur eða hver annar líkamshluti sem er. ... Á hinn bóginn get ég ekki hugsað mér neinn efnislegan eða rúman hlut, án þess ég geti auðveldlega hlutað hann í sundur í huganum. Þetta hrykki til að sanna mér fullkominn eðlismun sálar og líkama, þó svo ég hefði aldrei áður gert mér grein fyrir honurn.'9 Eftir þetta segir Descartes, og er þar að vísa til fyrri rökfærslu sinnar í Hugleiðingunum, að ef hann vissi þetta ekki annars staðar frá, þá nægði þessi greinargerð til að sýna fram á að sál mannsins sé „skýrt aðgreind frá líkamanum". I þessum kafla setur Descartes fram fram skoðun sem svipar mjög til þess sem við höfum séð hjá Plótínosi: að sálinni verði ekki skipt í hluta á sama hátt og Iíkamanum. Samtíma- maður Descartes og landi, Pierre Gassendi reit eins og fleiri heldri hugsuðir á þessum tíma andmæli við Hugleiðingarnar. Hann snýr út úr orðum Descartes hér og segir: Meinarðu að þú hafir þá ekki rúmtak, af því að þú sért heild í heild og allur í heild í hverjum hluta hennar?30 Descartes neitar því ekki í svari sínu að ályktun Gassendis sé heimil. í svari sínu segir hann nefnilega: Vissulega skil ég nú að hugurinn spannar líkamann á engan annan hátt en þann að hann er allur í honum öllum og allur í hverjum hluta hans.-^1 Þarna má greinilega heyra bergmál frá Plótínosi og Ágústínusi, sem tekur upp rök Plótínosar í De trinitate, VI, 6 og í De immortalitate animœ, XVI, 25 (8). Það er eftirtektarvert, að Descartes teflir fram kenningunni um að hugurinn sé allur í öllum líkamanum á sama hátt og Plótínos gerir, þegar til umræðu er sálin í tengslum sínum við líkamann. Þar kemur fram sú „mynd“ af sálinni að hún sé að sumu leyti algerlega rúmtakslaus vera, þ.e.a.s. skilningur, og að sumu leyti hluttakandi í rúmtaki að því leyti sem hún myndar einingu með líkamanum og telst spanna hann. En þar sem hún er öll í hverjum hluta, myndar hún eininguna án þess að vera undirorpin skiptingu í rúmi. 29 Óprentuð þýðing Þorsteins Gylfasonar á Hugleiðingum umfrumspeki, bls. 40. 30 Haldane og Ross, The Philosophical Works of Descartes, II, s. 198. 31 Sama rit, s. 255.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Hugur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.