Hugur - 01.01.1992, Side 99

Hugur - 01.01.1992, Side 99
HUGUR Hvernig Descartes erfornlegur 97 Nú kynni einhver að segja að ég hafi aðeins drepið á fáeinar smávægilegar hliðstæður sem komi aðalatriðunum sáralítið við, þó að þær séu í sjálfu sér allrar athygli verðar. Það sem máli skiptir, mætti segja, er nýrstárleiki hugmyndar Descartes þess efnis að sálin — skilin þannig að hugtakið „cogitationes" spanni ekki aðeins kláða, kitl og þess háttar, heldur líka drauma og hugsanir um þríhyrninga eða eigindir guðdómsins, allt að því er virðist á jafnréttisgrundvelli — hafi til að bera milliliðalausa og óvéfengjanlega þekkingu á sjálfri sér, jafnvel þótt hún viti ekki hvort nokkuð annað sé til. Og það er vissu- lega satt, að hugmyndin sé mikilvæg í heimspeki nútímans og að Descartes eigi mestan þátt í því að hún var sett í fyrirrúm. Það er almennt hald manna að samkvæmt skoðun Descartes gœtu allar hinar ýmsu „cogitationes“ átt sér stað án þess að til væri nokkur hlutur sem hefði rúmtak. Auðvelt er skilja Descartes á þennan hátt ef menn einblína á efarök hans og cogito-rökin sem á eftir fylgja. En eins og Margaret D. Wilson hefur sýnt fram á er þessi túlkun á Descartes augljóslega röng.34 Hún bendir á að hjá Descartes eigi hrein hugsun sér enga samsvörun við ytri veruleika yfirleitt, en því sé aftur á móti ekki að heilsa þegar um skynjun eða ímyndun er að ræða. Ennfremur bendir Wilson á að hin frægu rök Descartes fyrir greinannun sálar og líkama í sjöttu hugleiðingu hvíli ekki á þeirri forsendu að skynjanir eða ímyndanir megi hugsa sér óháð líkamanum, og að Descartes hafi aldrei hugsað sér annað. Wilson heldur því fram, og styður mál sitt gildum rökum að því er ég fæ best séð, að (1) Descartes hafi ekki talið sig hafa skýrar og greinilegar hugmyndir um skynjanir og ímyndanir og almennt um þær sálargáfur sem styðjast við líkamann;35 að (2) hann hafi ekki talið að þessar sálargáfur væru hluti af eðli hans sem hugsandi veru, en aftur á móti að hinn hreini skilningur væri það;36 (3) að sennilega hafi Descartes ekki einu sinni gert ráð fyrir því að skynjunin væri hugsanlega óháð líkamanum.37 34 Margaret D. Wilson, „Cartesian Dualism" í Descanes: Critical and Interpretative Essays, s. 197-211. 35 Sama rit, s. 207-208. 36 Sjötta hugleiðing (Haldane og Ross, The Pliilosopliical Works of Descartes, I, s. 78). 37 Wilson, s. 208-210. Hún vísar í kafla úr bréfi Descartesar við Elísabetu (AT III, 691-692; Descartes: Pliilosophical Letters, þýtt og ritstýrt af Anthony Kenny (Oxford 1970), s. 141.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.