Hugur - 01.01.1995, Page 36
34
Alan M. Turing
HUGUR
Sv.: (Um Það bil 30 sekúndna bið og svo kemur svarið) 105.621.
Sp.: Kanntu skák.
Sv:. Já.
Sp.: Ég er með kóng á E8 og enga aðra menn. Þú hefur kóng á
E6 og hrók á A1 og enga aðra menn. Þú átt leik. Hvað
gerir þú?
Sv.: (Um það bil 15 sekúndna bið) Hrókur A1 til A8, mát.
Með því að skiptast svona á spurningum og svörum má taka fyrir
nánst öll viðfangsefni sem menn glíma við. Við viljum ekki að vélin
gjaldi þess að hún getur ekki unnið feguðarsamkeppni, neitt frekar en
við viljum að maðurinn gjaldi þess að geta ekki unnið kapphlaup við
flugvél. Eins og leikurinn er settur upp skipta slíkir hæfíleikar engu
máli. Viðmælendur geta að vísu, ef þeir sjá sér hag í því, gortað eins
mikið og þeir vilja af fegurð sinni, kröftum og hugprýði, en
spyrillinn getur ekki krafist þess að þeir haldi neina sýningu á þessum
eiginleikum.
Það má ef til vill gagnrýna leikinn á þeim forsendum að reglurnar
séu manninum í hag. Manninum tækist illa ef hann ætti að þykjast
vera vél. Það kæmist strax upp um hann vegna þess hvað hann er
seinn og lélegur í talnareikningi. Getur ekki verið að vélar geri
eitthvað sem rétt er að kalla hugsun en er samt ólíkt nokkru því sem
menn gera? Þessi andmæli eru alls ekki léttvæg, en við getum þó að
minnsta kosti sagt að takist að smíða vél sem leikur hermileikinn
nógu vel þá sé óþarfí að hafa áhyggjur af þeim.
Það mætti kannski halda því fram að fyrir vél sem leikur
hermileikinn kunni að vera vænlegra til sigurs að gera eitthvað annað
en að herma eftir manni. Þetta getur verið, en mér þykir ólíklegt að
það breyti miklu. Hér er ekki ætlunin að rannsaka þennan leik sem
slíkan, heldur verður gert ráð fyrir því að heppilegustu leikbrögð
vélarinnar séu að svara eins og mönnum er eðlilegt.
3. Vélarnar (leiknum
Spurningin sem við settum fram í §1 verður ekki alveg ótvíræð fyrr
en við höfum gert grein fyrir því hvað við meinum með orðinu „vél“.
Það er eðlilegt að við viljum leyfa hvers kyns verkfræðileg
tæknibrögð við smíði vélarinnar. Við viljum líka gera ráð fyrir þeim