Hugur - 01.01.1995, Síða 50
48
Alan M. Turing
HUGUR
framan þá held ég að hann mundi ekki lýsa þeim sem „einföldum
brögðum". Því orðalagi er fremur ætlað að lýsa aðferðum á borð við
þá að láta hljóðupptöku, þar sem einhver les sonnettu, inn í vélina
ásamt rofum sem setja hana í gang við og við.
í stuttu máli sagt held ég hægt sé að sannfæra flesta sem halda fram
þessum rökum með tilvísun til meðvitundar um að rétt sé gefa þau
upp á bátinn til að þurfa ekki að fallast á sjálfsveruhyggju. Þeir
mundu þá að líkindum vera til í að samþykkja prófið okkar.
Ég vil ekki að mál mitt skiljist svo að ég neiti því að meðvitundin
sé leyndardómsfull. Það er til dæmis eitthvað mótsagnakennt við
allar tilraunir til að staðsetja hana. En ég held að það sé ekki
nauðsynlegt að komast til botns í þessum leyndardómum til þess að
svara þeirri spurningu sem hér er til umræðu.
Rök leidd afýmiss konar vanhæfni
Þessi rök eru á forminu, „Ég skal fallast á að þú getir búið til vél sem
gerir allt þetta sem þú hefur nefnt en þú getur aldrei búið til vél sem
gerir X“. Það er æði margt látið koma í stað X í þessu sambandi.
Hér eru nokkur dæmi:
Yera blíðlynd, úrræðagóð, falleg, vingjarnleg, taka frumkvæði,
hafa kímnigáfu, þekkja mun á réttu og röngu, gera mistök, verða
ástfangin, þykja jarðarber með rjóma góð, láta einhvern verða skotinn
í sér, læra af reynslunni, haga orðum sínum rétt, vera viðfang eigin
hugsunar, sýna jafn fjölbreytilega hegðun og maður, gera eitthvað
algerlega nýtt.
Yfírleitt eru engin rök færð fyrir þessum fullyrðingum. Ég held að
þær séu yfirleitt byggðar á vísindalegri aðleiðslu. Einhver hefur séð
mörg þúsund vélar um æfína. Af því sem hann hefur séð leiðir hann
ýmsar alhæfingar eins og: vélar eru ljótar, hver þeirra er hönnuð til að
þjóna mjög þröngt afmörkuðum tilgangi og ef það á að gera hlutina
ofurlítið öðru vísi þá er hún gagnslaus, þær sýna lítinn fjölbreytileika
í hegðun o.s.fr. Eins og eðlilegt er álykta menn að allar vélar hljóti
nauðsynlega að hafa þessa eiginleika. Margar þessar takmarkanir
tengjast því hvað vélar hafa yfirleitt lítið geymslurými. (Ég geri ráð
fyrir að hægt sé að útvíkka hugmyndina um geymslurými þannig að
hún geti átt við aðrar vélar en stakrænar vélar. Það er ekki þörf á
fullkominni skilgreiningu þar sem hér er ekki fjallað um efnið af