Hugur - 01.01.1995, Page 54
52
Alan M. Turing
HUGUR
stundarsakir með því að bera fyrir sig málsháttinn „Ekkert er nýtt
undir sólinni.“ Hver getur verið þess fullviss að „frumlegt verk“ sem
eftir hann liggur hafí ekki sprottið upp af einhverju sem honum hefur
verið kennt eða sé tilkomið vegna þess að hann fylgdi vel þekktum
almennum reglum. Betra tilbrigði við þessi andmæli er að segja að
vél geti aldrei „komið okkur á óvart“. Þessi fullyrðing kemur beint
að efninu og það er hægt að snúa sér beint til varnar. Vélar koma mér
oft á óvart. Þetta er að miklu leyti vegna þess að ég reikna ekki út
hvers vænta má af þeim, eða réttara sagt, þó ég reikni þá geri ég það
kæruleysislega og í flýti og tek áhættu. Ég segi kannski við sjálfan
mig, „Spennan hér er sjálfsagt sú sama og þarna, gerum alla vega ráð
fyrir að svo sé.“ Að sjálfsögðu skjátlast mér oft og niðurstaðan
kemur mér á óvart því þegar hlutirnir gerast er ég búinn að gleyma
þessum ágiskunum. Ef til vill gefa þessar játningar einhverjum
tilefni til siðapredikana yfir mér en enginn hefur neina ástæðu til að
efast um að ég verði stundum hissa á hegðun vélanna.
Ég býst ekki við að þetta dugi til að þagga niður í andmælendum
mínum. Þeir eru vísir til að segja að undrun mína megi rekja til eigin
skapandi hugarstarfs og vélin eigi ekkert hrós skilið fyrir það. Þetta
leiðir okkur langt frá þeirri hugmynd að vél geti ekki komið manni á
óvart og við erum aftur komin að rökunum sem voru leidd af
meðvitundinni. Við hljótum að líta svo á að við höfum lokið þeirri
umræðu en kannski er þó rétt að benda á að það að finnast eitthvað
koma sér á óvart krefst jafnmikils „skapandi hugarstarfs" hvort sem
undrunarefnið á uppruna sinn hjá manni, bók, vél eða einhverju öðru.
Sú skoðun að vélar geti ekki komið á óvart stafar, að ég held, af
villu sem heimspekingar og stærðfræðingar eru sérlega gjarnir á að
gera. Þessi villa er í því fólgin að álíta að um leið og manni er kynnt
einhver staðreynd þá spretti allar afleiðingar hennar fram í huga hans.
Það er í mörgum tilvikum gagnlegt að gera ráð fyrir þessu og helst til
auðvelt að gleyma því að þetta er ósatt. Eðlileg afleiðing þessa er að
álíta að það þurfi engar sérstakar gáfur til að draga ályktanir af
upplýsingum og almennum reglum.