Hugur - 01.01.1995, Page 62
60
Alan M. Turing
HUGUR
Það kunna að vera skiptar skoðanir um hvað rétt er að smíða
margbrotið vélbarn. Það mætti reyna að hafa það eins einfalt og
mögulegt er þannig að öllum almennum skilyrðum sé þó fullnægt.
Á hinn bóginn mætti líka „byggja inn í það“^ fullmótað kerfi
rökfræðilegra ályktana. í síðara tilvikinu færi mikill hluti
geymslunnar undir skilgreiningar og fullyrðingar. Fullyrðingarnar
væru titlaðar á ýmsa vegu, sumar væru t.d. öruggar staðreyndir sumar
væru tilgátur, aðrar væru sannaðar með stærðfræðilegum hætti,
yfirlýsingar frá æðri stöðum eða setningar með rökform yrðinga en án
gildis sem segir hvort þeim er trúað eða ekki. Sumum fullyrðingum
væri lýst sem „boðorðum“. Vélin væri þannig gerð að um leið og
boðorð flokkast sem „örugg staðreynd“ þá breytti hún sjálfkrafa í
samræmi við það. Þetta má skýra með dæmi: Gerum ráð fyrir að
kennarinn segi við vélina, „Farðu að vinna heimaverkefnin þín.“
Þetta getur valdið því að setningin „Kennari segir „Farðu að vinna
heimaverkefnin þín““ flokkist með öruggum staðreyndum. Önnur
staðreynd í þeim flokki gæti verið „Allt sem kennarinn segir er rétt.“
Þegar þetta er tekið saman getur það á endanum leitt af sér að
boðorðið „Farðu að vinna heimaverkefnin þín“ lendi í flokki öruggra
staðreynda og vegna þess hvernig vélin er sett saman leiðir það til
þess að hún byrjar á heimavinnunni. Ályktunarreglurnar sem vélin
notar þurfa ekki endilega að uppfylla ítrustu skilyrði rökfræðinga.
Það mætti til dæmis sleppa stigveldi taga [hierarchy oftypes]. Þetta
þýðir ekki endilega að vélin geri rökvillur með því að rugla saman
tögum, barnið þarf ekki endilega að detta í brunninn þó hann sé
óbyrgður. Viðeigandi boðorð (sem eru sett fram innan kerfísins, en
mynda þó ekki hluta af reglum kerfísins) eins og „Ekki nota mengi
nema það sé hlutmengi í öðru sem kennarinn hefur haft orð á“ geta
haft svipuð áhrif og „Ekki fara of nálægt brunninum".
Boðorð sem útlimalaus vél getur fylgt hljóta að tengjast heldur
vitsmunalegum efnum, eins og í dæminu (af heimavinnu) sem nefnt
var hér áðan. Meðal þeirra mikilvægari af þessum boðorðum eru
fyrirmæli sem stjórna því í hvaða röð reglum rökkerfisins skal beitt.
Því þegar unnið er innan rökfræðilegs kerfís þá er, eftir hvert skref,
hægt að halda áfram á mjög marga vegu án þess að brjóta gegn
2 Eða öllu heldur „forrita inn í það“ því vélbamið verður forritað á stafrænni tölvu.
En það þarf þá ekki að læra rökfræðikerfið.