Hugur - 01.01.1995, Side 79

Hugur - 01.01.1995, Side 79
HUGUR Hugur, heili ogforrit 77 4. Samsetningarrökin (Berkeley og Stanford) „Seinustu þrjú andmæli geta kannski ekki ein og sér hrakið gagndæmiðum kínverska herbergið á fyllilega sannfærandi hátt en saman verða þau mun öflugri og jafnvel afgerandi. Hugsum okkur vélmenni með heilalaga tölvu sem sé komið fyrir í eftirlíkingu af hauskúpu og að tölvan sé forrituð með öllum taugamótum mannsheila, öll hegðun tölvunnar sé óaðgreinanleg frá mannlegri hegðun, og að allt sé þetta eitt órofa kerfi en ekki bara tölva með inntaki og úttaki. I slíku tilviki yrðum við vissulega að eigna kerfinu ibyggni.“ Ég er algerlega sammála því að í slíku tilviki findist okkur skynsamlegt og raunar óhjákvæmilegt að fallast á þá tilgátu að vélmennið hefði íbyggni, svo fremi við vissum ekkert meira um það. Aðrir þættir en útlit og hegðun skipta í raun engu máli fyrir vélmennið. Ef við gætum búið til vélmenni sem hegðaði sér að verulegu leyti rétt eins og maður, þá myndum við eigna því fbyggni, á meðan ekkert mælti gegn því. Við þyrftum ekki að vita til viðbótar að tölvuheili þess væri formleg eftirlíking af mannsheila. En ég get hreint ekki séð að róttækri gervigreind sé nein hjálp í þessu, og ástæðan er þessi: Samkvæmt róttækri gervigreind er formlegt forrit með réttu inntaki og úttaki nægjanlegt skilyrði fyrir íbyggni, og raunar grundvallaratriði hennar. Newell hélt því fram að eðli hins hugræna væri starfsemi efnislegs táknkerfis.10 En að við skulum eigna vélmenninu íbyggni hefur ekkert með formleg forrit að gera, það byggist einfaldlega á þeirri ályktun að ef vélmennið lítur út og hagar sér nægjanlega líkt og menn, má ætla ef ekkert mælir gegn því, að það hafi hugarástand eins og menn sem orsakar og kemur fram í hegðun þess, og það hlýtur að hafa innri byggingu sem gerir slíkt hugarástand mögulegt. Ef við hefðum sjálfstæða vitneskju um hvernig ætti að gera grein fyrir hegðun þess án slíkrar ályktunar, myndum við ekki eigna því íbyggni, sér í lagi ef við vissum að það hefði formlegt forrit. Og þetta er nákvæmlega aðalatriðið í fyrra svari mínu við andmælum 2. 10 Newell, A. 1979. „Physical Symbol Systems." Fyrirlestur haldinn á La Jolla ráðst. um hugfræði. Einnig prentaður 1980 í Cognitive Science 4:135-83.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.