Hugur - 01.01.1995, Page 82
80
John R. Searle
HUGUR
Snúum okkur þá að spurningunni sem ég lofaði að reyna að svara: Að
því gefnu að í upphaflega dæminu skilji ég ensku en ekki kínversku,
og að vélin skilji hvorki ensku né kínversku, þá hlýtur að vera
eitthvað við mig sem veldur því að ég skil ensku og að sama skapi
eitthvað sem mig vantar sem veldur því að ég skil ekki kínversku. En
hvers vegna er ekki hægt að gefa vélinni þetta, hvað sem það nú er?
Ég sé enga ástæðu til að ætla að það sé fræðilega útilokað að vél
geti ráðið yfir hæfileikum til að skilja ensku eða kínversku, þar sem
líkami manns og heili eru í mikilvægum skilningi einmitt slík vél.
En ég hef sterk rök fyrir því að vél geti ekki búið yfir slíkum
hæfileikum, ef hún vinnur eingöngu eftir reiknanlegum aðgerðum á
formlega skilgreindar einingar; ef starfsemi vélarinnar er skilgreind
sem tiltekið tölvuforrit. Það er ekki vegna þess að ég sé dæmi um
tölvuforrit að ég get skilið ensku og verið í margvíslegu íbyggnu
ástandi (ég geri ráð fyrir að ég sé dæmi um ótölulegan fjölda
tölvuforrita), heldur er það, eftir því sem best er vitað, vegna þess að
ég er tiltekin lífvera með sérstaka líffræðilega (þ.e. efnafræðilega og
efnislega) gerð og þessi gerð getur, undir vissum kringumstæðum,
alið af sér íbyggni eins og skynjun, athafnir, skilning og nám. Og eitt
af því sem ég vildi benda á er að einungis eitthvað sem hefur þessa
orsakabundnu hæfileika, gæti búið yfir þesskonar íbyggni. Kannski
geta önnur efnisleg og efnafræðileg ferli leitt af sér þessi áhrif;
kannski hafa Marsbúar einnig íbyggni en heila úr ólíkum efnum.
Þessari spurningu, eins og þeirri hvort ljóstillífun geti átt sér stað hjá
einhverju sem er efnafræðilega frábrugðið blaðgrænu, verður ekki
svarað að óreyndu.
En það sem hér skiptir mestu máli er að hreint formlegt kerfi mun
aldrei geta búið yfir íbyggni eitt og sér, vegna þess að íbyggni er ekki
til orðin af formlegum eiginleikum einum saman. Og þessir formlegu
eiginleikar eru ekki orsakabundnir nema þegar kerfið hefur verið
hlutgert og þá einungis til að færast á næsta stig formgerðarinnar eftir
því sem gangverkið hreyfist. Allir aðrir orsakabundnir eiginleikar sem
gangverk eftir hinu formlega líkani kann að hafa, skipta líkanið engu
máli, því alltaf má smíða nýtt gangverk eftir sama formlega líkaninu
þar sem þessir eiginleikar eru augljóslega ekki til staðar. Jafnvel þótt
kínverskir málnotendur færu, fyrir eitthvert kraftaverk, eftir forriti